Sport

Sá hraustasti æfir sig á hjólabretti fyrir næsta CrossFit mót

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Karl Guðmundsson sést hér æfa sig á hjólabrettinu.
Björgvin Karl Guðmundsson sést hér æfa sig á hjólabrettinu. Instagram/@bk_gudmundsson

Björgvin Karl Guðmundsson hefur sýnt magnaðan stöðugleika á heimsleikunum í CrossFit undanfarin ár og það virðist vera fátt sem kemur kappanum í einhver vandræði. Hann er meira að segja á heimavelli á hjólabrettinu.

Björgvin Karl sýndi takta á hjólabrettinu á samfélagsmiðlum sínum um helgina.

Björgvin er á leiðinni til Texas í þessum mánuði þar sem fer fram hið árlega Rogue Invitational. Björgvin er það er einn af útvöldum úr hópi þeirra bestu í heimi sem fá að keppa á þessu stóra móti.

„Laglegt. Rogue Invitational var að tilkynna það að það verður hjólabretta grein á mótinu. Get ekki beðið,“ skrifaði Björgvin Karl við nokkur myndbönd af sér leika sér á hjólabretti.

„Af hverju ertu góður í öllu,“ spyr Sólveig Sigurðardóttir sem keppti eins og Björgvin karl á síðustu heimsleikum og kannski skiljanlega.

BKG sýndi nefnilega flotta takta á brettinu eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×