Íslenskir notendum samfélagsmiðilsins Twitter létu vel í sér heyra á meðan leik stóð og hér fyrir neðan má sjá brot af því besta.
Við þurfum nýjan þjóðsöng án tafar #porisl
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) October 11, 2022
Byrjunarlið íslenska kvennalandsliðsins be like:
— Bjarki Ármannsson (@bjassi103) October 11, 2022
Leikmenn
𝕁𝕦𝕧𝕖𝕟𝕥𝕦𝕤,
𝔅𝔞𝔶𝔢𝔯𝔫 𝔐ü𝔫𝔠𝔥𝔢𝔫,
𝙋𝙎𝙂,
𝐖𝐞𝐬𝐭 𝐇𝐚𝐦
𝙰𝙲 𝙼𝚒𝚕𝚊𝚗
Byrjunarlið karlalandsliðsins be like:
Leikmenn úr Bromma Pöjkarna í Svíþjóð og U-18 liði Brescia.
Ansi hræddur um að Íslendingar muni eiga þessa stúku í kvöld 🇮🇸👏 pic.twitter.com/c9bDxmbstf
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) October 11, 2022
Portúgalska liðið var hættulegra í fyrri hálfleik, en eins og svo oft áður var Sandra Sigurðardóttir vel vakandi í markinu.
Besta færi leiksins til þessa eiga Portúgalar á 20. mínútu en Sandra með glæsilega vörslu. pic.twitter.com/TSHNqKv2tC
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Íslenska liðið fékk þó einnig færi í fyrri hálfleik og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var hársbreidd frá því að koma liðinu í forystu.
Úfff! Gunnhildur Yrsa setur hann í þverslána! Besta færi Íslands. pic.twitter.com/bV1sl5z5w3
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Áhorfendur heima í stofu höfðu áhyggjur af liðinu í hálfleik og fannst íslensku stelpurnar ekki halda nógu vel í boltann.
Sko það væri æðislegt fyrir taugarnar mínar ef stelpurnar gætu náð að tengja saman þrjár sendingar 🇮🇸🇮🇸 Koma svo #fyrirísland
— Magnús H. Jónasson (@Maggih90) October 11, 2022
Við þurfum að halda betur í boltann. Náum að tengja 2-3 sendingar. Þetta hefur verið arkelísarhællinn hjá landsliðinu. Þurfum leikmenn á miðsvæðið sem geta haldið boltanum og skapað og reyna nýta styrkleika Sveindísar í 1 á 1 stöðu. Þær 🇵🇹 líklegri þessa stundina. #fotboltinet
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) October 11, 2022
Sveindís Jane Jónsdóttir virtist svo koma íslenska liðinu í forystu snemma í síðari hálfleik. Markið var hins vegar dæmt af eftir að dómari leiksins fór í VAR-skjáinn góða og við tók ævintýralegt VAR-fíaskó í kjölfarið hinumegin á vellinum sem endaði með því að portúgalska liðið fékk vítaspyrnu, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir rautt spjald og PPortúgal skoraði úr vítinu.
SVEINDÍS SKORAR !!! En dómarinn er að skoða þetta í VAR. pic.twitter.com/1iSXSH5Vtr
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Það er skammt stórra högga á milli. Rétt eftir að mark Sveindísar er dæmt af fær Portúgal víti og Áslaug Munda er rekin út af. pic.twitter.com/lqIMadnVLH
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Og Carole Costa skorar úr vítinu. 1-0 fyrir Portúgal. Þá er bara að jafna þetta. pic.twitter.com/DtR9qbMdvb
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Er þessi leikur promoteraður af Don King? Þvílíkt sement.
— Henry Birgir (@henrybirgir) October 11, 2022
Hvað er þessi franski dómari að gera? Þetta er einn fáránlegasti dómur sem ég hef séð öll þau ár sem ég hef fylgst með fótbolta? Hvernig í ósköpunum fær hún út að þetta sé rautt spjald? #fotbolti
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) October 11, 2022
Óvinir íslenska ríkisins (uppfært):
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) October 11, 2022
-Staffan Olsson
-Halim Al
-Robbie Williams
-Ulrik Wilbek
-Gordon Brown
-Stéphanie Frappart
Yndislegar VAR mínútur hérna fyrir okkur Íslendinga 🥺🫠
— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) October 11, 2022
Afhverju er þessi dómari ekki bara heima hjá sér að horfa á sjónvarpið. Virðist hafa gaman af því...
— Auðunn Blöndal (@Auddib) October 11, 2022
Nei þetta er ekki boðlegt.
— Freyr Alexandersson (@freyrale) October 11, 2022
Ef Íslenska liðið kemst í gegnum þetta er það stærsti sigur sem kvennalandsliðið hefur unnið.#aframisland
Íslensku stelpurnar lögðu þó ekki árar í bát og Glódís Perla Viggósdóttir jafnaði metin með fallegum skalla eftir aukaspyrnu frá Selmu Sól Magnúsdóttur.
JÁÁ!!! GLÓDÍS JAFNAR. Staðan orðin 1-1. pic.twitter.com/dFgeSYkFaL
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Þarna!!! Svara þessum dómaraskandal!
— Rikki G (@RikkiGje) October 11, 2022
Vel svarað! Koma svo!!! Risaknús á Áslaugu Mundu, þetta var fullkomið kjaftæði.
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) October 11, 2022
Alexandra Jóhannsdóttir fékk einnig dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum, en í þetta skipti voru VAR-guðirnir með okkur í liði.
Frappart dómari veit ekki sitt rjúkandi ráð. Dæmir víti á Alexöndru en hættir svo við eftir að hafa skoðað þetta betur. pic.twitter.com/QOF7UfMj6Q
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Áslaug Munda fékk stuðning í stúkunni eftir að hafa verið rekin af velli.
Áslaug Munda fær knús frá mömmu sinni og pabba 💙 pic.twitter.com/r6c7D5QIBx
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) October 11, 2022
Það var ekki bara álag á leikmönnum, heldur íþróttafréttafólki líka.
Held ég sé að togna á öllum fingrum við að setja öll atvikin úr leiknum inni á @ruvithrottir Vinsamlegast sendið sjúkrabíl hingað á standby.
— Hans Steinar (@hanssteinar) October 11, 2022
Portúgalska liðið tók forystu strax á upphafsmínútum framlengingarinnar og bjartsýnin var fljót að fara hjá íslensku áhorfendunum.
Æi nei. Framlengin rétt nýhafin þegar Portúgal skorar úr skyndisókn. 2-1. Þá er bara að jafna aftur. pic.twitter.com/PMFkK6bVG9
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Sorry hef ekki séð neitt nýtt sem segir mér að það verðu sigur í dag ⚽️
— Helena Ólafsdóttir (@helenaolafs) October 11, 2022
Snemma í síðari hálfleik framlengingarinnar skoruðu þær portúgölsku þriðja markið sitt og í uppbótartíma negldu þær seinasta naglann í kistu Íslands.
Var þetta rothöggið? Tatiana Pinto kemur Portúgal í 3-1. Ömurlegt. pic.twitter.com/Lgg7ttdo4M
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022
Jæja, ef þriðja markið gerði það ekki þá gerði þetta mark endanlega út um vonir Íslands. Lokatölur 4-1 fyrir Portúgal og Ísland er úr leik. pic.twitter.com/r3B5Jxm06z
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2022