Lífið

Stjörnulífið: Eddan, kynjaboð og hundrað mílur

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga. Instagram

Eddan átti hug og hjörtu landsmanna á sunnudagskvöldið þar sem verðlaun voru veitt fyrir íslenskt sjónvarpsefni. Ítalía heldur áfram að vera vinsæll áfangastaður hjá ferðaþyrstum Íslendingum og listamenn vinna að nýju efni fyrir veturinn. 

Fjölmiðlakonurnar Edda Sif Pálsdóttir og Kristjana Arnarsdóttir voru tilnefndar sem sjónvarpskonur ársins á Eddunni. Það var Helgi Seljan sem tók heim sigurinn í flokknum en samstarfskonurnar unnu þó á Twitter fyrir frábæran húmor

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal fór ekki tómhentur heim af Eddunni. Þetta er fyrsti sigurinn hans á hátíðinni eftir 21 ár í sjónvarpi.

Vikan með Gísla Marteini átti einstaklega góða viku.

Söngkonan Bríet og kærasti hennar Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo, keyptu sér ekki teppi í Tyrklandi. Parið kom þó fram í brúðkaupi sem þar var haldið og skemmti gestum.

Uppskrifta- og bókahöfundurinn Linda Ben giftist Ragnari Einarssyni á Ítalíu á dögunum. Nú ætla þau fjölskyldan að ferðast um og njóta hveitibrauðsdaganna saman. 

Söngkonan Birgitta Haukdal birti mynd af sér og strákunum sínum í hljóðsveitinni Írafár. 

Förðunarfræðingurinn og hlauparinn Rakel María hljóp hundrað mílur.

Söngkonan Klara Elias er að vinna að nýju efni í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi.

Raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir tilkynnti að von sé á lítilli stúlku í febrúar.

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar mætti með stuðið í 110.

Tískugyðjan Elísabet Gunnarsdóttir deildi baðherbergi heimilisins með fylgjendum sínum en fjölskyldan kemur sér fyrir í húsi í Skerjafirðinum.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einars fór í drykki með stelpunum. 

Söngvarinn Júlí Heiðar var að kafna úr hita í Róm.

Tónlistarfólkið GDRN og Magnús Jóhann gáfu út plötuna Tíu Íslensk lög sem hefur slegið í gegn.

Skemmtikraftarnir Friðrik Ómar og Jógvan skelltu sér í kjóla fyrir veislustjórn helgarinnar. 

Fullur undirbúningur er í gangi fyrir Konur eru konum bestar átakið.

Söngkonan Jóhanna Guðrún deildi einni sjálfu en fyrstu plöturnar frá söngkonunni eru komnar á streymisveituna Spotify.

Það er allt eins og það á að vera hjá áhrifavaldinum Camillu Rut. Hún setti inn mynd af sér fataskápnum í gamla húsinu sínu sem hún deildi með fyrrum eiginmanni sínum. Húsið fór nýlega á sölu og er selt.

Fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson tók daginn snemma í sveitinni með eiginmanni sínum Baldri Þórhallssyni og afabarni.

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel fyllti skemmtistaðinn Húrra með tónleikum ásamt hljómsveitinni Inspector Spacetime. Hann gaf nýlega út lagið Púki og sagði frá ferlinu í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Amatör.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Tímamót, bombur og maraþon í Frakklandi

Íslendingar virðast vera að taka út ferðalögin og stórafmælin sem féllu niður vegna heimsfaraldursins þessa dagana. Mikið hefur verið um viðburði og fögnuði og ekkert lát virðist vera á slíku í framtíðinni því listafólk er strax er byrjað að undirbúa jólaskemmtanirnar. 

Stjörnulífið: Barnalán, berjamór og Ljósanótt

Haustið er mætt í allri sinni dýrð og virðast samfélagsmiðlar iða af spenningi yfir rútínu, hlýjum peysum og kertaljósi. Þó eru ekki allir tilbúnir að sleppa sumrinu og hafa haldið erlendis til þess að heilsa upp á sólina. Ljósanótt fór fram og skartaði himininn sínum fallegu norðurljósum í tilefni þess.

Stjörnulífið: Skemmtiferðaskip, barneignir og útlönd

Stjörnulífið þessa vikuna var fullt af stemningu, barneignum og utanlandsferðum. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima og guðmóðir þess Katy Perry stálu senunni um helgina en íslenskar stjörnur skemmtu einnig gestum skipsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×