Tónlist

„Algjörlega laus við áhrif frá púkanum“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Unnsteinn Manuel gerir hlaðvarp um sína fyrstu sóló plötu Amatör.
Unnsteinn Manuel gerir hlaðvarp um sína fyrstu sóló plötu Amatör. Unnsteinn Manuel

Virk tónlistariðkun Unnsteins Manuels sat aðeins á hakanum í byrjun námsins í kvikmyndaskóla í Berlín. Hann tók því meðvitaða ákvörðun til að bregðast við þessu og sagði hann frá því í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Amatör. 

„Í fyrsta lagi keypti ég mér gítarstand og kom honum fyrir í stofunni. Í stað þess að hafa gítarinn í tösku inni í vinnuherbergi eða fyrir fjölskyldunni á sófanum í stofunni, þá var ég alltaf með gítarinn við hendina á meðan ég horfði á sjónvarpið.“

Auk þess setti hann upp algjörlega tölvulaust og sjálfbært stúdíó. 

„Ég keypti hljómborð sem ég gat notað til að forrita allskonar stef og búið til heilu lögin í og tengdi það við nokkra hljóðgervla sem ég tók með mér frá íslandi, svo keypti ég upptökutæki til að festa þessi stef á skrá. Þannig að eftir langan dag fyrir framan tölvuna þá gat ég staðið fyrir framan ljósaflóð af græjum og tökkum, einskonar skemmtara á sterum og leikið mér að því að semja lög út í bláinn.“

Hann keypti sér nýja græju eftir hverja lotu í skólanum. Að spila á þessar græjur var ákveðin hugleiðsla.

„Þannig að í gegnum mjög flókið og erfitt nám, þá var þetta mín helsta slökun. Eftir langan dag, að kveikja í skemmtaranum og semja út í bláinn. Ég vissi alveg að ég hefði ekki tíma til að pæla í neinu, þetta væru ekki endilega lög sem ég væri að fara gera eitthvað við og rauða upptökuljósið það rúllaði bara. Stundum ýtti ég á rec og stundum ekki. Og smátt og smátt er það undirmeðvitundin sem tekur við stýrinu, algjörlega laus við áhrif frá púkanum.“

Unnsteinn segir frá laginu Púki í þriðja þættinum af hlaðvarpinu Amatör. Þáttinn má heyra á helstu hlaðvarpsveitum og í spilaranum hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

„Éf ég hefði ekki tónlistina þá væri ég ekki andandi“

„Í svona fjölbreyttri stórborg, þá hættir íslendingur smátt og smátt að vera sonur Önu eða Stefáns, eða frændi eða bróðir eða neitt þangað til að einn daginn, Þá er ekkert til sem heitir Unnsteinn Manuel. Þetta er öfugt við Ísland, þar sem allir þekkja alla,“ segir Unnsteinn Manuel um lífið í Berlín í nýjasta hlaðvarpsþættinum af Amatör.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×