Brynjar Björn valinn þjálfari mánaðarins í Svíþjóð Valur Páll Eiríksson skrifar 8. september 2022 16:31 Brynjar Björn hefur hægt og bítandi fjarlægst fallsvæðið. Vilhelm Gunnarsson Brynjar Björn Gunnarsson var valinn þjálfari mánaðarins í sænsku B-deildinni en lærisveinar hans í Örgryte hafa fjarlægst fallsvæðið með góðum árangri í ágúst-mánuði.
Brynjar Björn hætti sem þjálfari HK í Lengjudeildinn, og tók við Örgryte um miðjan maí. Liðið hafði þá farið illa af stað í deildinni sat á botninum með tvö stig eftir sjö leiki. Hagur liðsins hefur vænkast frá því að hann mætti á svæðið og hefur hann nú verið verðlaunaður fyrir sín störf. Örgryte vann þrjá leiki af fimm í ágúst og tapaði engum. Tilkynnt var um það í morgun að Brynjar Björn hefði verið valinn þjálfari mánaðarins í deildinni fyrir þann árangur. Grattis, Brynjar Gunnarsson! @OrgryteFotboll-tränaren tar hem Månadens Tränare i #Superettan i augusti pic.twitter.com/7bP1dp5xWt— Superettan (@SuperettanSE) September 8, 2022 Það er einhver sárabót fyrir Brynjar þar sem liðið hóf september á tapi, 1-0 á heimavelli fyrir Landskrona á laugardaginn síðasta. Þrátt fyrir það tap situr Örgryte í 11. sæti deildarinnar, af 16 liðum. Tvö neðstu lið deildarinnar falla en þau tvö fyrir ofan það, í 13. og 14. sæti fara í umspil fyrir falli. Örgryte er sex stigum frá fallsæti en er jafnt Jönköpings og Norrby, sem eru fyrir neðan þá, að stigum. Norrby er í efra umspilssætinu. Það má því ekki mikið út af bregða nú þegar átta umferðir eru eftir af deildinni. Örgryte sækir Trelleborg heim um helgina, sem er í sjöunda sæti með 33 stig.
Sænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira