Golf

PGA-tíma­bilinu lýkur í At­lanta: Schef­fler getur skráð sig á spjöld sögunnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Scottie Scheffler verður í sviðljósinu á mótinu.
Scottie Scheffler verður í sviðljósinu á mótinu. EPA-EFE/ROBERT PERRY

PGA-tímabilið 2021-22 í golfi lýkur nú um helgina þegar Tour Championship-mótið fer fram á East Lake-vellinum í Atlanta. Sem stendur er hinn 26 ára gamli Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, líklegastur til að hreppa hnossið en hann gæti sett met á mótinu.

Tour Championship-mótið er hluti af PGA-mótaröðinni og hefur nær alltaf verið eitt síðasta mót mótaraðarinnar. Patrick Cantlay fór með sigur af hólmi í fyrra, Dustin Johnson þar áður og Rory McIlroy árið 2019.

Scheffler hefur átt frábært ár og er í þeirri stöðu að hann gæti endað sem sá kylfingur sem hefur þénað mest yfir stakt tímabil á PGA-mótaröðinni frá upphafi. Kylfingurinn hefur nú verið samfleytt á toppi heimslistans í 22 vikur og þá hefur hann rakað inn 14 milljónum Bandaríkjadala á tímabilinu en það samsvarar tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna.

Ekki nóg með það heldur getur Scheffler komist í fámennan hóp kylfinga sem hafa unnið fimm eða fleiri PGA-mót á einu tímabili. Tiger Woods hefur gert það átta sinnum á ferli sínum en hinir eru Nick Price, Vijay Singh, Jason Day, Jordan Spieth og Justin Thomas.

Scheffler kemst í þann hóp með sigri um helgina. Ekki nóg með það heldur vann hann Masters-mótið sem og önnur mót sem töldu aðeins tólf hæsta kylfinga heimslistans. Scheffler getur því með sanni fullkomnað eitt besta tímabil í sögu PGA-mótaraðarinnar með sigri um helgina.

Tour Championship verður sýnt beint á Stöð 2 Golf þangað til skorið verður úr um hver sigrar á sunnudaginn kemur. Dagskrá mótsins má sjá hér að neðan.

Fimmtudagur 25. ágúst: 17.00 til 22.00.

Föstudagur 26. ágúst: 17.00 til 22.00.

Laugardagur 27. ágúst: 17.00 til 23.00.

Sunnudagur 28. ágúst: 16.00 til 22.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×