Tíska og hönnun

Nýjum stílum og bikiní frá Swimslow fagnað í Andrá

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jara stjörnuspekingur, Eva Dögg, Erna Bergmann og Elísabet Gunnars.
Jara stjörnuspekingur, Eva Dögg, Erna Bergmann og Elísabet Gunnars. Swimslow í Andrá

Sundfatamerkið Swimslow fagnar fimm ára afmæli í ár og heldur upp á áfangann með því að bæta við þremur nýjum stílum af sundbolum og loksins bikiníi. Silja Magg myndaði nýja herferð íslenska merkisins. 

En einnig opnaði Swimslow sýningarrými og vellíðunarstúdíó við Seljaveg 2 fyrr í sumar. Þar deilir merkið fallegu rými með Rvk Ritual og Jöru stjörnuspekingi. Swimslow fagnaði nýju línunni í versluninni Andrá við laugaveg þann 6. ágúst síðast liðinn og má sjá myndir frá viðburðinum neðar í fréttinni. 

Silja Magg

Ný herferð Swimslow var mynduð af Silju Magg á Langasandi á Akranesi og í nýju fallegu sjóböðunum við Hvammsvík í Kjósinni. Fyrirsæturnar Kristín Lilja Sigurðardóttir og Tamara Akinyi frá Eskimo Models sitja fyrir í herferðinni en Helena Jónsdóttir sá um hár og förðun. Aðstoðarljósmyndari Silju Magg var Magnús Óli Sigurðsson.

Silja Magg

„Nýju sundbolirnir eru fágaðir með einfaldleikann í fyrirrúmi. Þeir eru í virkilega klæðilegum sniðum og gæddir fallegum smáatriðum. Nýju bolirnir eru ekki með brjóstaskálum og ættu því að passa flestum líkamsgerðum og henta konum einstaklega vel sem vinna í vatni. Svo ef konum vantar sundbol til þess að synda, fara í sjósund, slaka á í gufunni, eru á leið í sólina eða langar bara einfaldlega að skvízast - þá reddar Swimslow málunum,“ segir um nýju línuna. 

Silja Magg

Swimslow er sjálfbært sundafatamerki stofnað og hannað af Ernu Bergmann. Sundbolir Swimslow eru hannaðir á Íslandi og framleiddir á Ítalíu úr endurunnum gæðefnum. Efni sundbolanna og framleiðsla þeirra fer fram í sama héraði á Ítalíu með áherslu á lágmarks áhrif á umhverfið. Þráðurinn í efni sundbolanna er meðal annars unnin úr notuðum teppum og fiskinetum sem er bjargað úr sjónum og er OEKO-TEX® vottað og hugað er að hverju smáatriði við hönnun og framleiðslu. 

Silja Magg

Hugmyndafræði Swimslow sprettur út frá baðmenningu Íslendinga þar sem sundföt eiga við allan ársins hring. Hönnuðurinn fékk innblástur úr tíðum sundferðum og heimsóknum í gufuböð og viðarsánur.

Silja Magg

„Sundbolirnir eru klassískir og áreynslulausir í sniðum og faðma kvenlíkamann í öllum sínum myndum. Swimslow-sund­bol­irn­ir eru hugsaðir fyr­ir all­ar kon­ur sem vilja láta sér líða vel og bera virðingu fyr­ir um­hverf­inu. Swimslow leggur mikla áherslu á að láta konum líða vel og hvetur konur til þess að næra sjálfar sig og gefa sér tíma í sjálfsrækt.“

Silja Magg

Sundbolirnir eru til sölu í Andrá við Laugaveg, verslun Kormáks og Skjaldar í Gróðurhúsinu í Hveragerði og Leifstöð, í spa-inu á Edition Hótelinu við Hafnartorg og á heimsasíðu merkisins swimslow.com. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá afmælisviðburðinum. 

Jara, Eva Dögg, Erna Bergmann og Elísabet Gunnars.Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Sigrún Edda, Erna Bergmann, Eva Katrín og Helena.Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Tinna og SylvíaSwimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Sigrún Eva mætti með barninu sínuSwimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Swimslow í Andrá
Tinni Sveinsson, Árni Filippusson og Birgir ÍsleifurSwimslow í Andrá
Andrá
Swimslow í Andrá


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×