Skómerkið JoDis er þekkt fyrir það að hanna skólínur í samstarfi við mismunandi aðila í tískuheiminum og hafa meðal annars gefið út línu með GDRN og Möschu Vang. Nú hefur Andrea Röfn hefur hannað nýja skólínu í samstarfi við danska skómerkið sem er væntanleg í lok vikunnar.
Tímamismunurinn smá áskorun
„Okkur finnst gaman að fá gestahönnuði í teymið okkar sem hafa mismunandi stíl og bakgrunn, það hvetur til fjölbreytileika og nýjunga í hönnun okkar” segir Bragi Jónsson eigandi JoDis. Andrea segir samstarfið ganga mjög vel enda ekki í fyrsta skipti sem þau sameina krafta sína:„Ferlið gekk mjög vel. Ég er stödd í Bandaríkjunum og restin af teyminu í Kaupmannahöfn þannig að fjarlægð og tímamismunur eru alltaf smá áskorun.
Eftir nokkurra ára samvinnu erum við hins vegar orðin eins og vel smurð vél og samstarfið verður bara betra með hverri línunni. Við byrjuðum á þessari línu fyrir tæpu ári og nýttum tímann vel til að hver einasta týpa myndi passa vel inn í heildarmyndina.“

Andrea elskar haustið
Hönnunarferlið á línunni hófst í lok ársins 2021 og segist Andrea halda mikið upp á haustið: „Ég elska að geta klæðst fleiri lögum af flíkum. Þá blanda ég oft saman stórum trefli, þykkari húfu og flottri kápu sem ég næ í aftast í skápnum mínum eftir sumarið,” segir hún um árstíðina. Hún segir einnig haust skófatnað oft geta verið aðeins líflegri í litum og mynstrum. Það varð innblástur að því hvernig nýja línan var útfærð.
„Í þessari haustlínu held ég að við höfum fundið hinn fullkomna milliveg hvað varðar haust litapallettu. Hún samanstendur af jarðlitum, nokkrum pastellitum og loks uppáhalds prentinu mínu, snákaskinni,” segir Andrea.

Erfitt að velja eina uppáhalds týpu
„Ég á ekki auðvelt með að gera það upp við mig hver mín uppáhalds týpa er í þetta skiptið,“ segir Andrea aðspurð hvaða skór séu í toppsætinu. „ERNA sem var hluti af lítilli jólalínu fyrsta árið mitt er að koma aftur í nýjum litum og ég hef alltaf haldið mikið upp á þá týpu.
Ég er líka mjög spennt fyrir IRENA sem er uppfærð útgáfa af tveimur eldri týpum sem fengu mjög góðar viðtökur.“ Litavalið í línunni er skemmtilegt og hefur hana lengi langað að vinna með þá liti og prent: „Ólífugræni liturinn hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og svo hefur mig lengi langað að vinna með snakeskin prentið.“

Endurunnar plastflöskur
Fyrrum samstarfslínur JoDis by Andrea Röfn hafa náð miklum vinsældum á Íslandi en nú er komin ný haustlína sem samanstendur af tíu stílum. Einnig koma tveir nýjir stílar sem eru vegan og eru framleiddir úr endurunnum plastflöskum.
Í gangsetningu upp á fæðingardeild í Boston
Þessa dagana er Andrea að bíða eftir sínu öðru barni með eiginmanni sínum, fótboltamanninum Arnóri Ingva, en fyrir eiga þau eina dóttur. Fjölskyldan er búsett í Boston þar sem Arnór hefur verið að spila með bandarísku fótboltaliði. Aðspurð hvað sé framundan stendur aldeilis ekki á svörum:
„Það er svo sannarlega mikið framundan hjá mér. Í þessum skrifuðu orðum er ég í gangsetningu á fæðingardeild í Boston og bíð eftir komu sonar okkar í heiminn. Fljótlega flytjum við fjölskyldan svo búferlum aftur til Svíþjóðar.
Þessu fylgja blendnar tilfinningar, að búa í Boston hefur verið frábært ævintýri en við erum líka mjög tilbúin í skandinavíska lífstílinn á ný,“ segir Andrea um breytingarnar framundan. „Það þýðir líka að ég verð ennþá nær JoDis teyminu sem er frábært,“ segir hún um staðsetninguna og bætir við að lokum:
„Svo er það auðvitað nýja skólínan sem fer í verslanir á föstudaginn sem ég er afar stolt af.“