Lífið

Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus

Elísabet Hanna skrifar
Íslendingar hafa ekki verið feimnir við það að skella sér til útlanda í sumar.
Íslendingar hafa ekki verið feimnir við það að skella sér til útlanda í sumar. Skjáskot/Instagram

Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi.

Lífið leikur við rapparann Emmsjé Gauta sem hefur ekki snert áfengi í þrjú ár. 

Eva Laufey fór til Flórens í brúðkaup systur sinnar Eddu Hermanns og Ríkharðs Daða. Brúðkaupið var draumi líkast ef marka má myndirnar.

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn var einnig í brúðkaupinu enda mikil vinkona brúðarinnar og hefur verið að njóta á Ítalíu ásamt fjölskyldunni sinni síðustu vikur. 

Söngkonan Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik áttu fallega stund í fjölskyldufríi stuttu eftir skírn dóttur sinnar.

Stjórnmálakonan Hildur Björnsdóttir stóð sig með prýði í veiði og nældi sér í tvo fiska í tveimur köstum.

Leikkonan Íris Tanja fann sólina í Basel ásamt kærustu sinni, Elínu Ey.

Útvarpsmaðurinn Svavar Örn og Daníel Örn giftu sig eftir nítján ára samband. 

Leikkonan Aldís Amah og leikarinn Kolbeinn Arnbjörnsson skelltu sér í sveitabrúðkaup þar sem leikarinn Hjörtur Jóhann og hönnuðurinn Brynja Björnsdóttir gengu í það heilaga.

Listakonan Rakel Tómasdóttir fór í brúðkaup Glódísar og Steinþórs, sem var haldið með pomp og prakt á Flateyri um helgina. 

Þúsunþjalasmiðurinn Aron Mola horfir til baka og fer yfir vegferðina við það að opna veitingastað.

Áhrifavaldurinn Fanney Ingvars og Teitur Páll nýttu síðsumarið til þess að skoða landið og áttu draumahelgi á Stykkishólmi.

Tónlistarmaðurinn Aron Can smellti mynd af sér í morgunsólinni í tilefni nýja lagsins.

Fyrirsætan og skóhönnuðurinn Andrea Röfn og fótboltakappinn Arnór Ingvi bíða spennt eftir sínu öðru barni. Áður en það mætir í heiminn ætla þau að flytja aftur til Svíþjóðar frá Boston, þar sem þau hafa verið búsett undanfarið. 

Framleiðandinn Arnar Eyfells fann ekkert meira iconic en LXS legendin.

Lúxuspían Sunneva Einarsdóttir mátti ekki við því að láta trufla sig í sólinni en flaug þó heim fyrir LXS frumsýningarpartý sem var haldið í gær á Bankastræti Club.

Dansarinn og fasteignasalinn Tara Sif nýtti sér Golden Hour fyrir LXS frumsýningarpartýið.

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir nýtur lífsins í Kaupmannahöfn á tískuvikunni eftir að hafa húkkað sér far með spíttbát á sýningu GANNI um helgina. 

Hönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir er einnig á fullu í tískuvikunni en náði þó að setjast niður í smá stund og njóta þess að vera til.

Söngkonan Bríet leggur land undir fót ásamt skapara sínum, móður sinni en þær virðast vera að eiga góðar stundir á Ítalíu.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra naut þess þegar sólin kíkti í heimsókn.

Trendnet bloggarinn Pattra S hefur átt yndislegt sumar fram að þessu í faðmi góðra vina.

Aldamóta poppararnir Hreimur, Vignir Snær og Benedikt Brynleifsson eru að sjóða í eldheitan hittara.

Erna Hrund og Lotta Lena voru í stíl enda aldrei og snemmt að kenna börnunum á tískuheiminn.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson baðaði sig í sjónum.

Beggi Ólafs has left the building og er farinn beina leið til Ameríku þar sem hann ætlar í doktorsnám.

Listakonan Saga Sig og kærastinn hennar Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, verða með opna vinnustofu á menningarnótt. 

Glódís Perla þakkar fyrir góðan leik á Ítalíu.

Selma Björnsdóttir á glæsilegar vinkonur sem hafa fylgt henni í gegnum lífið.

Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Agnes Björgvinsdóttir fór til Austurríkis.

Gunnhildur Yrsa skellti sér á stefnumót með ástinni sinni Erin McLeod.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Gleðigangan, gosið og grín

Gleðigangan fyllti samfélagsmiðla af ást, gleði og fjölbreytileika um helgina. Gosið sýndi sínar bestu hliðar og virtust margir leggja leið sína að því þrátt fyrir orð Víðis um að æða ekki upp á fjall. Grínið var líka áberandi þar sem Ari Eldjárn fór aftur af stað með uppistandið sitt í Edinborg og einnig fjölgaði í grínistum landsins.  

Stjörnulífið: Þjóðhátíð, ástin og brjóstagjöf

Stjörnulífið þessa vikuna náði hápunkti um helgina þar sem Íslendingar skemmtu sér um land allt á fjölbreyttan hátt í tilefni Verslunarmannahelgarinnar. Klara Elias samdi og flutti Þjóðhátíðarlagið í ár sem hefur slegið í gegn og Magnús Kjartan Eyjólfsson kom sá og sigraði í brekkusöngnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×