Fótbolti

Þýskur lands­liðs­maður í sigtinu hjá Man.Utd

Hjörvar Ólafsson skrifar
David Raum er öflugur sóknarbakvörður. 
David Raum er öflugur sóknarbakvörður.  Vísir/Getty

Manchester United hefur áhuga í því að tryggja sér þjónustu David Raum, leikmanns Hoffenheim og þýska karlalandsliðsins í fótbolta.

West Ham United, Newcastle United og Borussia Dortmund eru einnig að skoða það að leggja fram tilboð í leikmanninn. 

Þessi 24 ára vinstri bakvörður sem er metinn á 34 milljónir punda en hann er með ákvæði í samningi sínum að Hoffenheim verði að taka lægra kaupverði en það næsta sumar.  

Raum lagði upp 13 mörk í 32 leikjum fyrir Hoffenheim í þýsku efstu deildinni á síðustu leiktíð. 

Þá átti hann flestar fyrirgjafir í fimm sterkustu deildarkeppnum Evrópu á síðasta keppnistímabili. 

Raum hefur leikið níu leiki fyrir þýska landsliðið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×