Innlent

Fasta­floti NATO kominn til Reykja­víkur

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Það sást til skips Atlantshafsbandalagsins rétt fyrir hádegi í dag.
Það sást til skips Atlantshafsbandalagsins rétt fyrir hádegi í dag. Vísir/Vilhelm

Fastafloti Atlantshafsbandalagsins, sem er hér á landi vegna kafbátarleitaræfingar sambandsins, hefur nú lagst að bryggju í Reykjavík.

Kafbátarleitaræfingin, sem kallast Dynamic Mongoose 2022, mun fara fram dagana 13.-23. júní næstkomandi en alls sex skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins hafa siglt hingað til lands af þessu tilefni. Æfingin mun að mestu leyti fara fram á hafssvæðinu við Noreg en að hluta til innan þess loftrýmissvæðis sem Íslands annast. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Leitaræfingin fer fram á tveggja ára fresti og skiptast Ísland og Noregur á sem gistíríki hennar en Noregur gegnir því hlutverki að þessu sinni. Bein þátttaka Íslands í æfingunni er því takmörkuð en verið er að stilla saman strengi hér á landi fyrir æfinguna sem hefst í Noregshafi 13. júní.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×