Erlent

Norska lögreglan lýsir eftir fanga sem er dæmdur fyrir tvö morð

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Millehaugen hefur frá því að hann varð fullorðinn verið reglulegur gestur fangelsa í Noregi.
Millehaugen hefur frá því að hann varð fullorðinn verið reglulegur gestur fangelsa í Noregi. Norska lögreglan

Norska lögreglan hefur lýst eftir fanga, sem var dæmdur fyrir tvo morð, eftir að hann skilaði sér ekki í fangelsið í Þrándheimi eftir dagsleyfi. Lýst hefur verið eftir fanganum alþjóðlega. Lögregla segir grun um að hann hafi farið til Ósló. 

Hinn 53 ára gamli Stig Millehaugen var árið 2012 dæmdur í 21 árs fangelsi, þyngstu mögulegu refsingu, fyrir morðið á Mohammad „Jeddi“ Javed, leiðtoga gengisins Young Guns. Hann hefur nú afplánað tíu ár af dómnum í fangelsinu í Þrándheimi.

Egil Gabrielsen fangelsisstjóri í Þrándheimi segir í samtali við fréttastofu VG að Millehaugen hafi átt að skila sér aftur klukkan þrjú að norskum tíma í dag en hafi ekki skilað sér. Stuttu eftir þrjú hafi viðvörunarbjöllur farið í gang og leit að honum hafist. Hann hefur enn ekki fundist.

Gabrielsen segir að þetta sé ekki fyrsta skiptið sem Millehaugen hafi fengið að fara í dagsleyfi og þá allt gengið vel. 

Millehaugen stóð, samkvæmt frétt VG, ekki einn að morðinu á Javed, en Shahbaz Ahmed Dad, leiðtogi gengisins B-gang, var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að fyrirskipa Millehaugen að myrða Javed. 

Hér að neðan má horfa á viðtal sem tekið var við Millehaugen árið 2017. 

Millehaugen er góðvinur lögregluna og þetta ekki hans fyrsti fangelsisdómur. Hann hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir bílrán, innbrot og vopnuð rán. Hann hefur í öllum málum neitað sök. 

Millehaugen er sömuleiðis reyndur í fangelsisflótta en samkvæmt dómi frá árinu 2002 hefur Millehaugen flúið fangelsi minnst þrisvar áður. Hann braust út úr fangelsinu í Berg árið 1992, þar sem hann afplánaði dóm fyrir sérstaklega alvarlegt rán. Hann framdi svo fjölda rána á meðan hann var á flóttanum. 

Eftir að hann náðist á flóttanum var hann fluttur í fangelsið í Sarpsborg, hvaðan hann slapp í desember 1992. Í ágúst 1993 var hann dæmdur í sautján ára fangelsi fyrir að hafa skotið og myrt Jon Arild Martinsen, fangavörð í Sarpsborgarfangelsinu, þegar hann flúði þaðan. 

Í október 2000 skilaði hann sér ekki úr dagsleyfi úr Ullersmo fangelsinu og var handtekinn aftur í júní 2001. Í júlí 2002 var hann ákærður fyrir tvær manndrápstilraunir með notkun skotvopns, eitt sérstaklega alvarlegt vopnað innbrot, tvö bílarán, fyrir að hafa rænt ýmsum vopnum, lögreglubúningi og lögreglubíl, fyrir að beita vopnum á hættulegan hátt, og fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×