Leikritið er eftir Thomas Vinterberg og byggt á dönsku Óskarsverðlaunamyndinni DRUK sem fjallar um fjóra lífsleiða menntaskólakennara sem ákveða að sannreyna tilgátu um að manneskjan sé fædd með hálfu prómilli áfengis of lítið í blóðinu.
Félagarnir fjórir verða leiknir af stórleikararnir Ingvari E. Sigurðssyni, Hilmi Snæ Guðnasyni, Halldóri Gylfasyni og Jörundi Ragnarssyni. Leikstjóri verður leikhússtjórinn sjálfur Brynhildur Guðjónsdóttir.
„Það er óhætt að segja að það sé mikill spenningur fyrir komandi ævintýri. Þetta er óður til lífsins og neistans sem vekur mannsandann, en í tilraun sinni til að vera „mátulegir“ feta þeir félagar jafnframt einstigið milli gleði og sorgar. Sýningin, sem frumsýnd verður í lok desember, mun kveðja með okkur gamla árið og heilsa nýju og leikhópurinn, jah þvílíkir félagar sem hér eru á ferð,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir.