Innlent

Er­­lendir fé­lags­menn Eflingar lýsa yfir stuðningi við Sól­veigu Önnu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mikill styr hefur staðið um störf Sólveigar hjá Eflingu og þá sérstaklega eftir að öllum starfsmönnum félagsins var sagt upp.
Mikill styr hefur staðið um störf Sólveigar hjá Eflingu og þá sérstaklega eftir að öllum starfsmönnum félagsins var sagt upp. Vísir/Vilhelm

Fimm erlendir félagsmenn Eflingar lýsa yfir eindregnum stuðningi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann félagsins og segjast vera í áfalli vegna ásakana um fordóma Sólveigar gagnvart erlendu fólki.

Grein sem þau Sæþór Randalsson, Barbara Sawka, Ian McDonald, Karla Ocón og Innocentia Fiati Friðgeirsson skrifa birtist á Vísi í dag og þar fara fimmmenningarnir yfir málefni Eflingar og segja margt hafa breyst innan Eflingar eftir að Sólveig Anna og B-listinn tóku við völdum árið 2018 og aftur nú á þessu ári.

Öll eru greinarhöfundar fædd erlendis og segjast hafa orðið fyrir útlendingahatri og mismunun hér á landi.„Einn staður þar sem við höfum ekki fundið fyrir mismunun er innan Eflingar,“ skrifa þau í greininni. 

Þau segja að sem félagsmenn Eflingar geti þau farið á viðburði stéttarfélagsins og fundist þau vera velkomin á meðal annarra innflytjenda.

„Við höfum tekið eftir og kunnað að meta breytingar líkt og þær að heimasíða Eflingar sé bæði á ensku og pólsku, að á viðburðum sé túlkað á ensku, að haldin hafi verið námskeið á ensku og að fólk af erlendum uppruna hafi verið valið í mikilvæg hlutverk innan félagsins,“ segir enn fremur í grein fimmmenninganna.

„Beinið reiði ykkar að raunverulegum útlendingahöturum“

Þau segja að þessar breytingar hafi ekki orðið af sjálfu sér heldur verið hluti af áætlun sem B-listi Sólveigar Önnu og félaga hafi komið af stað. Þau segja Sólveigu ítrekað hafa barist fyrir því að borin sér virðing fyrir erlendum félagsmönnum.

„Þess vegna erum við í áfalli þegar við sjáum ásakanir um fordóma Sólveigar gagnvart fólki af erlendum uppruna. Í hreinskilni sagt er það hrein lygi, frá óvildarfólki sem í örvæntningu sinni reynir að skemma fyrir Sólveigu og B-listanum.“

Þau segja að Efling geti að sjálfsögðu gert betur og að fullum réttindum erlends verkafólks sé ekki náð. 

„Við ætlum hins vegar ekki að leyfa tækifærissinum að mistúlka þær raunverulega góðu breytingar sem hafa orðið innan stéttarfélagsins á sýnileika, völdum og virðingu gagnvart erlendu fólki. Okkar skilaboð til þeirra sem koma með falskar ásakanir eins og þessar: Beinið reiði ykkar að raunverulegum útlendingahöturum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×