Tíska og hönnun

Bestu íslensku Instagram reikningar til að fylgja ef þú elskar tísku

Helgi Ómarsson skrifar
Lífið tók saman lista yfir flottar týpur til að fylgja á Instagram fyrir tískuinnblástur.
Lífið tók saman lista yfir flottar týpur til að fylgja á Instagram fyrir tískuinnblástur. Samsett/Instagram

Ísland geymir allskonar stórkostlegt fólk. Við sjáum þau í sjónvarpinu, útvarpinu, á götunum og á samfélagsmiðlum. 

Fyrir fólk sem brennur fyrir tísku þá eigum við mikið af einstaklega vel dressuðu og kúl fólki sem er ófeimið við að deila því á samfélagsmiðlum. Við ákváðum að fara yfir þá Instagram reikninga sem við teljum ómissandi að fylgja fyrir tískuperrana.

Tómas Urbancic er búsettur í Kaupmannahöfn ásamt fjölskyldu sinni og vinnur hann fyrir markaðsskrifstofuna Now Agency sem standa fyrir merki á borð við 3.1 Phillip Lim, Ami Paris, Kenzo og Missoni.

Sigríður Margrét bloggari á Trendnet.is og er rúmlega með alla putta á púlsinum þegar kemur að stíl og tísku.

Ellen Loftsdóttir stílisti og ritstjóri Favorite Magazine hefur unnið með stærstu merkjum heimsins á borð við Louis Vuitton og samstarf Virgil Abloh og Ikea svo eitthvað sé nefnt. 

Tania Lind var áður búsett í London en mætti sjóðheit aftur á klakann og er núna markaðsstjóri NTC.

Guðmundur Ragnarsson er fatahönnuðarnemi við Listaháskóla Íslands og með sérstaklega góðan fatasmekk.

Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró er einn vel klæddur kauði og er duglegur að deila á samfélagsmiðlum tísku, úr, snyrtivörur og góð ráð um heilsu. Hann heldur fylgjendum sínum á tánum hvað hann pantar næst frá Mr Porter.

Elísabet Gunnars er mörgum kunnug en hún hefur bloggað um tísku og hönnun í fjölda ára á Trendnet og er hvergi hætt. Hún veitir auðveldlega innblástur þar sem hún fer ávallt nýjar og spennandi leiðir í fatavali.

Ástrós Trausta sló rækilega í gegn í Allir Geta Dansað og hefur síðan þá sett inn hverja neglu mynd á eftir annarri.

Logi Þorvaldsson er auðveldlega einn nettasti íslenski karlmaðurinn sem fer nákvæmlega sínar leiðir í fatavali.

Írena Sveins verslunarstjóri Húrra Reykjavík er alltaf fáranlega flott í klæðnaði.


Tengdar fréttir

Íslensk hönnun, vintage flíkur og skrjáfandi jakki á Söngvakeppninni

Það fór varla framhjá neinum að Söngvakeppnin var haldin hátíðleg á dögunum þar sem þær Ey systur fóru með sigur á hólmi mörgum til mikillar ánægju. Keppendur voru hver öðrum glæsilegri og þar sem ég var á staðnum nýtti ég tækifærið og fékk að gluggast í hverju keppendur klæddust. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×