Pólverjar á leið á HM á kostnað Svía

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Robert Lewandowski verður með Pólverjum á HM.
Robert Lewandowski verður með Pólverjum á HM. Rafal Oleksiewicz/PressFocus/MB Media/Getty Images

Pólverjar tryggðu sér sæti á HM í Katar með 2-0 sigri gegn Svíum í úrslitaleik umspils í kvöld.

Enn var markalaust þegar flautað var til hálfleiks, en strax á þriðju mínútu síðari hálfleiksins dró til tíðinda. Jesper Karlström braut þá á Grzegorz Krychowiak innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Markamaskínan Robert Lewandowski fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá Robin Olsen í sænska markinu.

Það var svo Piotr Zielinski sem tryggði liðinu 2-0 sigur með marki á 73. mínútu og farseðillinn á HM þar með í höfn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira