Fimmtán milljónir frá ríkinu níu árum eftir fimm vikna einangrun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. mars 2022 08:30 Tollvörðurinn er enn við störf hjá Tollgæslunni en hefur þó ekki fengið að starfa með fíkniefnahundum frá því málið kom upp. Trúverðugleiki hans virðiðst hafa beðið hnekki við handtökuna og hafa umsóknir hans um fyrra starf ekki skilað árangri. Vísir/Jóhann K. Íslenska ríkið hefur samþykkt að greiða tollverði tæplega fimmtán milljón krónur í bætur og nema bótagreiðslur til hans nú samanlagt um tuttugu milljónum króna. Tollvörðurinn varði fimm vikum í gæsluvarðhaldi og einangrun árið 2013 vegna gruns um aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Lögmaður mannsins segir bótagreiðsluna ekki bæta það tjón sem tollvörðurinn var fyrir en þó fela í sér viðurkenningu á að ríkið hafi brotið á saklausum manni fyrir tæpum áratug. Frændi sem tengdist málinu Það var í janúar 2013 sem tollgæslan fann rúmlega tuttugu kíló af amfetamíni og 1,7 lítra af afmetamínsbasa í póstsendingum í húsakynnum Póstsins á Stórhöfða í Reykjavík með aðstoð fíkniefnahunda. Fjöldi manns var handtekinn í málinu sem leiddi að lokum til þungra dóma. Fjórir karlmenn voru að lokum dæmdir í sautján ára fangelsi samanlagt í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní 2013. Sakborningar í málinu hylja andlit sín þegar málið var þingfest árið 2013.Vísir/Vilhelm Tollverðinum var leystur frá störfum þegar hann var hnepptur í gæsluvarðhald en grunur beindist að honum þar sem frændi hans var tengdur málinu. Talið var að tollvörðurinn hefði séð til þess að fíkniefnahundur hefði ekki verið við vinnu þegar sendingin kom til landsins. Ekkert benti hins vegar til þess að sá grunur væri á rökum reistur og neitaði tollvörðurinn sök allan tímann, þær fimm vikur sem hann dúsaði í gæslvuarðhaldi. Farið var yfir öll samskipti þeirra frænda og leiddi rannsóknin ekkert misjafnt í ljós. Á hálfum launum í fjóra mánuði Tollvörðurinn stefndi ríkinu vegna málsins. Hann var frá störfum í um fjóra mánuði vegna málsins og á hálfum launum þann tíma. Hann hefur starfað sem tollvörður síðan en ekki fengið að starfa með fíkniefnahundum eins og hann hafði gert áður en málið kom upp. Var hann sviptur þeim titli en hann hafði verið með hund, mætt í húsleitir og verið á vegum Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Tollvörðurinn fór reglulega með fíkniefnahund í eftirlit á Keflavíkurflugvelli. Hann hefur ekki fengið slík verkefni síðan málið kom upp fyrir rúmum níu árum.vísir/vilhelm Tollverðinum höfðu þegar verið dæmdar á fimmta milljón króna í bætur vegna málsins árið 2015. Hann vildi ekki koma fram undir nafni í samtali við fréttastofu við þau tímamót en sagðist fenginn að þessum kafla í lífi hans væri lokið. Svo var þó ekki. Vegna andlegra erfiðleika var ákveðið að skoða málið betur. Fór maðurinn í mat og kom niðurstaða úr matsgerð fyrr á þessu ári þar sem hann var metinn með skerta starfsorku og varanlegan miska. Féllst ríkislögmaður í gær á að greiða tæplega fimmtán milljónir króna í bætur til viðbótar á grundvelli fyrrnefndrar matsgerðar. Hafði ekkert til sakar unnið Ómar Örn Bjarnþórsson hæstaréttarlögmaður hefur gætt hagsmuna mannsins í tæpan áratug eða síðan málið kom upp. Ómar Örn Bjarnþórsson „Samkomulag náðist við ríkislögmann um greiðslu þeirra bóta sem krafist var sem var ánægjuleg niðurstaða fyrir minn umbjóðanda,“ segir Ómar. Því sé engin ástæða til að halda áfram með málið fyrir dómi. Umbjóðandi hans var kominn með gjafsókn í málinu. Málsókn hefði því verið honum að kostnaðarlausu. „Þó að greiðslan bæti ekki það tjón sem umbjóðandi minn varð fyrir þá felur hún þó í sér enn eina viðurkenninguna á þvi að það var íslenska ríkið sem braut á honum árið 2013,“ segir Ómar. „Hann hafði sér ekkert til sakar unnið.“
Fluttu inn amfetamín frá Danmörku Tollgæslan Mest lesið Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Innlent „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Innlent Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu Innlent Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Innlent Fleiri fréttir Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Sjá meira