Fótbolti

Fjögur mörk skoruð í leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni

Atli Arason skrifar
Lucas Paqueta gerði sigurmark Lyon ásamt því að fá gat á hausinn.
Lucas Paqueta gerði sigurmark Lyon ásamt því að fá gat á hausinn. Getty Images

Eintracht Frankfurt og Lyon eru í ágætri stöðu eftir sigur á útivelli í fyrri viðureign 16-liða úrslita Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Frankfurt vann Real Betis á Benito Villamarín leikvanginum á Spáni, 1-2. Serbinn Filip Kostić kom gestunum yfir á 14. mínútu. Nabil Fekir jafnaði leikinn fyrir Betis á 30. mínútu áður en að Daichi Kamada kom þýska liðinu strax aftur yfir tveimur mínútum síðar og meira var ekki skorað. Frankfurt er því í góðri stöðu fyrir síðari viðureign liðanna, sem fer fram í Frankfurt fimmtudaginn 17. mars.

Lyon vann 0-1 útisigur á Porto í hinum leik kvöldsins. Lucas Paquetá gerði eina mark leiksins á 59. mínútu leiksins. Lyon fer því með eins marks forystu inn í síðari viðureign liðanna sem verður líka leikinn á fimmtudaginn næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×