Innlent

Hnoðaði föður sinn til lífsins: „Ég ætlaði ekkert bara að horfa á pabba fara þarna“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Elsa Albertsdóttir, Skyndihjálpamaður ársins 2021, og Albert Eðvaldsson, faðir hennar. 
Elsa Albertsdóttir, Skyndihjálpamaður ársins 2021, og Albert Eðvaldsson, faðir hennar.  Vísir/Egill

Ung kona sem bjargaði lífi föður síns með því að beita skyndihjálp þegar hann fór í hjartastopp er Skyndihjálparmaður ársins 2021. Hún segir skyndihjálparnámskeið sem hún sótti hafa skipt sköpum en þökk sé snöggum viðbrögðum hennar er faðir hennar við fulla heilsu í dag. 

Skyndihjálpamaður ársins 2021 var útnefndur af Rauða krossinum í dag en það var 22 ára háskólaneminn Elsa Albertsdóttir sem varð fyrir valinu þar sem hún bjargaði föður sínum, Alberti Eðvaldssyni, þegar hann fór í hjartastopp síðastliðið sumar.

Elsa minnist þess að þau hafi verið stödd heima hjá afa hennar ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum að horfa á fótboltaleik þann 22. ágúst þegar hún tók eftir því að faðir hennar lognaðist út af.

„Við förum bara í það að spyrja hvort það sé í lagi og hann svarar engu,“ segir Elsa og minnist þess að hann hafi gefið skrýtin hljóð frá sér en þá hringdi fjölskyldan í neyðarlínuna. 

Því næst byrjuðu þau að færa Albert úr stólnum en þá tók Elsa eftir því að öndunarvegur hans væri lokaður.

„Þannig ég bara byrja að hnoða hann, það var eitthvað sem sagði mér bara að gera það. Síðan skipaði ég afa að blása á móti mér og mági pabba að halda höfðinu hans til að opna öndunarveginn,“ segir Elsa.

Þau héldu þessu áfram í um sex til sjö mínútur þar til sjúkraflutningarmenn mættu á vettvang en þeir notuðu hjartastuðtæki á Albert og var hann endurlífgaður á staðnum. Hann var því næst fluttur á spítala og dvaldi á hjartadeild í þrjár nætur.

„Ég var þarna bara í góðum málum að spjalla við mína ástvini og fjölskyldu og við vorum held ég bara að ræða veiði, ég og mágur minn,“ minnist Albert um daginn . 

„Ég var með símann minn og ætlaði að gera eitthvað en svo kom bara svima tilfinning yfir mig og ég man ekkert meira eftir það nema á gólfinu þegar ég rankaði við mér.“

Fyrstu mínúturnar mikilvægastar

Hann hafði farið í hjartastopp sem orsakaðist af því sem kallast kransæðarof en hann segir að engin merki hafi verið um að neitt væri að áður en hann fór í hjartastopp. Hann kveðst nú fullfrískur og kann heilbrigðisstarfsmönnum á Suðurnesjum miklar þakkir.

Þá segir hann snör viðbrögð dóttur sinnar hafa skipt sköpum, enda eru fyrstu mínúturnar lang mikilvægastar, og finnst honum vel við hæfi að dóttir hans sé skyndihjálparmaður ársins.

Albert mætti með Elsu þegar hún hlaut verðlaunin. Mynd/Rauði krossinn

„Hún hefur gert lítið úr þessu. Hún hefur alltaf sagt; „þetta er bara eitthvað sem ég varð að gera,“ en það er náttúrulega bara magnað að geta brugðist við, gert þetta og líka við ástvin sinn. Þannig að þetta er einstakt,“ segir Albert en Elsa segir það hafa hjálpað að um væri að ræða föður hennar.

„Ég ætlaði ekkert bara að horfa á pabba fara þarna, það hjálpaði mér að halda áfram og fá þennan styrk til að geta gert þetta og brugðist svona við,“ segir Elsa.

Sjálf hafði Elsa sótt skyndihjálparnámskeið þrjú ár í röð og segir það þeim að þakka að hún hafi náð að halda föður sínum á lífi.

Bjóstu einhvern tímann við að þurfa að nota það sem þú lærðir á þessum námskeiðum?

Aldrei, mér hefði aldrei dottið það í hug. En svo bara veit maður ekki, eins og með pabba, það var enginn fyrirboði þannig maður veit aldrei hvenær maður lendir í þessum aðstæðum og bara um að gera að fara á þessi námskeið, þá veistu alla vega hvað þú átt að gera,“ segir Elsa og tekur Albert undir.

Frá athöfn 112 dagsins. Mynd/Rauði krossinn

„Alveg sama hvar þú ert þá þarftu mögulega að beita skyndihjálp af einhverju tagi. Það er ekkert endilega hjartahnoð eða endurlífgun, það getur verið að aðstoða við yfirlið eða koma fólki í betri stöðu, stöðva blæðingu eða bruna, það er svo margt sem að þú lærir líka á þessum námskeiðum,“ segir Albert.

„Ég held að það skipti máli, líka bara í lífinu, að vera tilbúinn og óhræddur við að taka af skarið,“ segir hann enn fremur. 

Elsa segist mjög þakklát fyrir að hafa verið valin sem skyndihjálparmaður ársins og stefnir á að nýta sína reynslu til að hjálpa öðrum. Hún vísar til þess að í Slóvakíu, þar sem vinkona hennar er í læknanámi, sé það skylda þegar fólk fær aldur til að taka bílpróf sé það skyldað í skyndihjálparnámskeið.

„Okkur langar að fara með þetta áfram, koma þessu kannski til ráðuneytanna eða koma þessu bara inn í lög, því að þú veist aldrei hvenær þú lendir í þessu og mér grunaði aldrei að ég myndi lenda í þessu.“


Tengdar fréttir

„Hann gæti dáið og þið þurfið að undirbúa ykkur“

Karenína Elsudóttir er einstæð móðir tveggja barna, Alexanders og Rebekku. Fjölskyldan býr í Grafarholtinu í Reykjavík en óhætt er að segja að lífið hafi tekið snúning í apríl á síðasta ári þegar Alexander veiktist illa og það á afmælisdaginn sinn.

Hjarta Geirs hætti að slá í hjóla­ferð í Hruna­manna­hreppi

Ótrúleg elja Ingunnar Sigurbjörnsdóttur, eiginkonu Geirs Óskarssonar, og skyndihjálparnámskeið frá 1986 sem hún tók þátt í skiptu sköpum þegar hjarta Geirs hætti að slá á annars fallegum sumardegi í Hrunamannahreppi í sumar. Þau eru uppfull af þakklæti til allra þeirra sem komu að því að bjarga lífi hans. 

Hneig niður í hjartastoppi þar sem þær sátu og spjölluðu

Sólveig Ásgeirsdóttir bjargaði lífi bestu vinkonu sinnar, Súsönnu Helgadóttur, í júlí síðastliðnum þegar Súsanna fór í skyndilegt hjartastopp á heimili sínu. Tveggja ára sonur Súsönnu lá sofandi í herbergi sínu þegar atvikið varð. Sólveig var í dag útnefnd skyndihjálparmaður ársins 2020.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×