Lífið samstarf

Dúndrandi rýmingarsala á Korputorgi – ILVA opnar nýja verslun í Kauptúni

ILVA
Frábært úrval af stólum á rýmingarsölunni, hægindastólar og borðstofustólar í ýmsum gerðum. Allir á 50-80% afslætti. Rýmingarsöluverð gilda á meðan birgðir endast.
Frábært úrval af stólum á rýmingarsölunni, hægindastólar og borðstofustólar í ýmsum gerðum. Allir á 50-80% afslætti. Rýmingarsöluverð gilda á meðan birgðir endast.

„Við opnum nýja og stórglæsilega verslun í Kauptúni 1 í Garðabæ í byrjun mars og erum því að tæma húsnæðið á Korputorgi. Það er dúndur rýmingarsala í gangi hjá okkur og hægt að gera frábær kaup.

Allar vörur í versluninni á Korputorgi eru á 50-80% afslætti, fjöldi sýningareintaka á frábæru verði, síðustu eintök og stakir gullmolar,“ segir Anna Soffía, markaðsfulltrúi ILVA og hvetur alla til að koma í heimsókn á Korputorg og hjálpa til við rýminguna.

Öll ljós sem eru staðsett í versluninni eru á 50-80% afslætti. Gólflampar, borðlampar, veggljós og loftljós. Fallegu fjaðraskermarnir frá UMAGE eru á 50% afslætti. Rýmingarsöluverð gilda á meðan birgðir endast.

Nýja húsnæðið í Kauptúni hentar einstaklega vel fyrir starfsemi ILVA og er staðsetningin ein sú besta á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdir eru þegar hafnar og ganga ljómandi vel, innréttingar eru sérhannaðar af arkitektum ILVA og vandað til verka. 

ILVA mun halda áfram að bjóða danska gæðahönnun ásamt sérvalinni gjafavöru í takt við tíðarandann hverju sinni. Starfsfólk ILVA er fullt tilhlökkunar að opna á nýjum stað og fagna opnuninni í byrjun mars.

STRAP ljós nú á 50-80% afslætti, ljósin koma í svörtu og hvítu og í nokkrum stærðum. Vönduð og flott dönsk hönnun. Ljósin eru til í Verslun á Korputorgi og Akureyri.

Myndir, myndarammar og plaköt eru á 50% afslætti á Korputorgi. Frábært úrval af fallegum myndum og vönduðum myndarömmum.

Fallegt og sniðugt sófaborð með tímaritahirslu. Þetta borð er nú á 60% afslætti en öll sófaborð í versluninni eru á 50-80% afslætti. Borðið fæst einnig alveg svart.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×