Innlent

Sá beran mann ef hún prílaði uppá stól

Jakob Bjarnar skrifar
Ef farið væri upp á stól við ákveðinn glugga mátti greina nakinn mann í húsi í næsta nágrenni. (Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.)
Ef farið væri upp á stól við ákveðinn glugga mátti greina nakinn mann í húsi í næsta nágrenni. (Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.) vísir/jakob

Guðmundur Benediktsson fyrrverandi hæstaréttarlögmaður þurfti að sinna sérkennilegu útkalli þegar hann var í lögreglunni; kona sem kvartaði undan strípalingi í nágrenninu.

„Þegar ég var í lögreglunni fórum við eitt sinn í útkall vegna konu sem sá oft beran mann í íbúðinni á móti hennar. Við fórum auðvitað á staðinn, en sáum engan beran mann. Jú, konan sagði hann vera þarna. Hann sæist ef farið væri upp á stól við glugga sem hún benti á og þá sæist hann,“ segir Guðmundur á Facebook-síðu Einars Gauts Steingrímssonar lögmanns.

Frá góðviðrisdegi í Laugardalslaug.Vísir/Vilhelm

Einar Gautur var að velta fyrir sér hneykslunargirni sem nú gengur ljósum logum um samfélagið og sagði frá því að eitt sinn hafi hann, þá ungur maður, mætt í útiskýlið í Laugardalslaugum. 

Þá hafi verið búið að hækka vegg í austri þannig að dró úr sólskini. Hann spurði þá hvers vegna og þá voru svör þau að konan í blokkinni fyrir ofan hefði kvartað undan því að hún sæi allsbera menn í skýlinu frá svölum sínum, ef hún væri með kíki.

Einar Gautur Steingrímsson veltir fyrir sér hneysklunargirni landsmanna.

„Mér finnst að þeir sem hneykslast eigi ekki að leita í dyrum og dyngjum af hneykslunarefnum. Af nógu er að taka samt,“ segir Einar Gautur.

Guðmundur segir söguna sannleikanum samkvæmt í samtali við Vísi. 

Stundum gerist eitt og annað þegar fólk sé einmana. 

„Oft var í það minnsta áður til dæmis hringt á nóttinni og eitt og annað áhyggjuefni rætt. Þessum hringingum var venjuleg vel tekið ef haldið var að hjálp væri af samtalinu.“

Téð útkall var líklega í kringum 1980 og var það í Reykjavík. Guðmundur telur óþarfi að tiltaka nánar staðsetningu, það skipti ekki máli. 

Svipað atriði var í Áramótaskaupi fyrir margt löngu, það hefur þá byggt á sannsögulegum atburðum þó ótrúlegt væri.

Guðmundur segir að þetta hafi auðvitað þótt fyndið og gengið eitthvað. 

„En þetta truflaði aumingja konuna.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×