Tíska og hönnun

Glamúr og gull í nýrri skartgripalínu Hlínar Reykdal

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal leggur áherslu á klassík og glamúr í nýrri línu sinni Young. 
Skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal leggur áherslu á klassík og glamúr í nýrri línu sinni Young.  Dóra Dúna

„Línan er fyrir alla sem fíla að bera skart, þó að línan heiti Young er hún ekki endilega bara fyrir yngri kynslóðina,“ segir listakonan Hlín Reykdal í samtali við Vísi. 

Hálsmen getur einnig verið armband

Ný skartgripalína Hlín Reykdal, sem ber nafnið Young, er að mörgu leyti ólík fyrri línum hennar en suma skartgripina er hægt að nota á marga vegu. 

„Sem dæmi getur hálsmen orðið að armbandi með því að vefja því um úlnliðinn. Þú ræður hversu stutt eða síð menin eru og sum getur þú haft tvöföld eða einföld. Mikið af eyrnalokkum eru í línunni sem henta einnig vel þeim sem hafa fleiri en tvö göt í eyrunum.“

Keðjurnar eru gullhúðaðar með 18 karata gulli. Íris Stefáns

Línan einkennist af 18 karata gullhúðuðum keðjum, svörtum steinum ásamt platínu húðuðum handgerðum keðjum. 

Íslensk hönnun í jólapakkann

Litadýrð hefur einkennt hönnun Hlínar en notast hún við gylltan, silfur og svart. 

Þó svo að línan beri nafnið Young segir hún skartgripina þó vera fyrir alla þá sem elski að bera fallegt skart, algjörlega óháð aldri. 

Finnur þú fyrir því að fólk vilji kaupa íslenska hönnun í jólapakkann?

„Já, heldur betur. Við finnum vel fyrir því hér í Kiosk Grandagarði en við seljum aðeins íslenska fatahönnun og skartgripi. 

Þó svo að línan beri nafnið Young segir Hlín skartgripina ætlaða öllum þeim sem elski að vera með skart, óháð aldri. Íris Stefáns

Það hefur verið mikil gróska í íslenskri hönnun almennt undanfarin ár, fjölbreytni og fagmennska. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því ég byrjaði í bransanum 2009,“ segir Hlín að lokum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá fleiri myndir af skartgripalínunni Young. 

Dóra Dúna
Dóra Dúna
Dóra Dúna
Dóra Dúna
Dóra Dúna


Tengdar fréttir

„Þessi sjúkdómur er miskunnarlaus“

„Pabbi minn lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu. Þessi sjúkdómur miskunnarlaus og ég hvet alla til að fara til læknis ef minnsti grunur vaknar,“ segir hönnuðurinn Hlín Reykdal í samtali við Vísi.

„Við lesum hvor aðra vel og vinnum eins og vel smurt tannhjól“

Hlín Reykdal og fatamerkið skaparinn sýna saman línu á HönnunarMars sem sameinar stefnu skartgripa- og fatahönnuðar á óvæntan og skemmtilegan hátt. Þær fara nýjar leiðir og fengu svo Dóru Dúnu ljósmyndara til að fanga sýn sem hefur myndast í þeirra þróun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×