Bíó og sjónvarp

Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones

Samúel Karl Ólason skrifar
George R. R. Martin, höfurnur A Song of Ice and Fire bókanna, hefði viljað fá hundrað þætti af Game of Thrones.
George R. R. Martin, höfurnur A Song of Ice and Fire bókanna, hefði viljað fá hundrað þætti af Game of Thrones. Getty/Liam McBurney

George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin!

Martin vildi að þáttaraðirnar yrðu tíu í stað sjö og gekk hann svo langt að fara á fund forstjóra HBO til að reyna að fá það í gegn. Það er samkvæmt nýrri bók sem heitir: Tinderbox: HBO‘s Ruthless Pursuit of New Frontiers.

James Andrew Miller, rithöfundur bókarinnar, ræddi meðal annars við umboðsmann Martins og forstjóra HBO.

Paul Haas, umboðsmaðurinn, sagði Martin hafa fengið áhyggjur eftir að fimmtu þáttaröð Game of Thrones lauk. Þá fóru þeir David Benioff og D.B. Weiss fram úr Martin, sem hefur skrifað fimm af sjö bókum sögunnar, samkvæmt frétt Insider.

Martin hefur unnið að Winds of Winter, sjöttu bók seríunnar, í tæpan áratug, sem er mikið. Jafnvel of.

Rithöfundurinn hafði farið yfir það hvernig hann ætlaði að hafa sögu bókanna með þeim Benioff og Weiss en honum fannst þeir hafa farið af leið. Þess vegna fór hann á fund Richard Plepler, forstjóra HBO, og ræddi við hann um að fjölga þáttaröðum.

Á þeim fundi lagði Martin fram að gerðar yrðu tíu þáttaraðir með alls hundrað þáttum. Það yrði farsælla gagnvart sögu þáttanna.

Plepler mun hafa tekið vel í það, enda voru þættirnir einstaklega vinsælir á heimsvísu og HBO vinnur að því að fanga þá stemningu aftur með fleiri þáttaröðum úr söguheiminum.

Benioff og Weiss voru þó ekki á þeim nótum og vildu halda sínu striki. Þátturinn endaði í átta þáttaröðum þar sem þær síðustu tvær voru einungis sjö og sex þættir, samanborið við tíu þætti í fyrri þáttaröðum.

Það fór í sannleikanum sagt ekki nægilega vel með sögu Game of Thrones og gæði þáttanna versnuðu augljóslega í síðustu þremur þáttaröðunum. Jafnt gagnrýnendur og áhorfendur voru sammála um að fleiri þætti hefði þurft til að gera sögunni almennilega skil.

Sjá einnig: Segir gagnrýni á áttundu þáttaröð Game of Thrones kjánalega

Bloys sagði Miller að hann hefði verið ánægður með endalok Game of Thrones en sagðist skilja gagnrýnina og þá sérstaklega þá gagnrýni sem snýr að persónuþróun Daenerys Targaryen í síðustu þáttunum.

„Ef það hefðu verið einn þáttur eða tveir til viðbótar, þá hefði það hjálpað,“ sagði Bloys. „Ég hefði tekið tvær þáttaraðir í viðbót.“

Miller hefur eftir Martin sjálfum í Tinderbox að hann vonist til þess að geta klárað Winds of Winter sem fyrst og vonandi þá sjöundu líka. Þá geti fólk farið að rífast um hvor endirinn sé betri.

Það verður alltaf endirinn í bókunum. Það er vitað!


Tengdar fréttir

Game of Thrones: Sorgleg en tímabær endalok

Leikarar hinna gífurlega vinsælu þátta, Game of Thrones, eru einkar sorgmæddir yfir því að þættirnir séu að klárast þó þeim þyki tímabært að binda enda á þennan langa kafla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×