Barcelona glutraði niður þriggja marka forystu

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Iago Aspas skoraði tvö mörk í endurkomunni
Iago Aspas skoraði tvö mörk í endurkomunni EPA-EFE/Lavandeira jr

Fyrir leikinn sat Barcelona í níunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga, en Celta Vigo var í því fjórtánda. Barcelona þurfti nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda í við toppbaráttuna. Liðið byrjaði líka betur. Strax á 5. mínútu leiksins fékk ungstirnið Ansu Fati boltann upp vinstri vænginn frá Jordi Alba. Fati þakkaði pent fyrir sig, lék inn á teiginn og skoraði framhjá markverði Celta.

Barcelona átti eftir að bæta við tveimur mörkum áður en hálfleiksflautið myndi heyrast. á 18. mínútu skoraði Sergio Busquets fínt mark. Boltinn barst til Busquets á miðjunni og hann fékk að rölta óáreittur að vítateig Celta. Busquets þakkaði gestrisnina með því að leggja boltann huggulega í fjærhornið.

Þá var komið að Memphis Depay. Á 34. mínútu skoraði hann með skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri frá jú, Jordi Alba. Memphis leikið stórt hlutverk í liðinu undanfarið. Staðan 0-3 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Það var allt annað Celta Vigo lið sem kom inn í síðari hálfleikinn. Markamaskínan Iago Aspas minnkaði muninn í 1-3 á 52. mínútu eftir mikinn klaufagang í vörn Barcelona. Það var þó Ter Stegen markvörður sem átti mesta sök í markinu.

Á 74. mínútu skoraði svo Nolito eftir frábæran undirbúning frá Franco Cervi. Cervi vann þá boltann af varnarmönnum Barcelona og átti svo flotta fyrirgjöf á kollinn á Nolito sem skallaði boltann í vinstra hornið. 2-3 og farið að fara um stuðningsmenn Börsunga.

Væntanlega hafa einhverjir haldið að þetta myndi samt sem áður duga hjá Barcelona en Iago Aspas sá til þess að svo væri ekki. á sjöttu mínútu uppbótartíma skoraði Aspas með góðu skoti fyrir utan teig.

þannig lauk leiknum með 3-3 jafntefli og Barcelona heilum átta stigum á eftir toppliði Real Sociedad.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira