Innlent

„Það getur alveg komið til þess að ég komi með nýjar til­lögur“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir nýjar sóttvarnaaðgerðir í samræmi við tillgögur sem hann lagði fyrir ráðherra. 
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir nýjar sóttvarnaaðgerðir í samræmi við tillgögur sem hann lagði fyrir ráðherra.  Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir koma til greina að leggja til frekari takmarkanir sjáist ekki skýr árangur af þeim sem taka í gildi á miðnætti. 

Níutíu og fimm greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. 375 hafa greinst smitaðir af veirunni undanfarna viku, lang flestir bólusettir gegn veirunni. Fjórir liggja nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Eftir því sem smituðum fór fjölgandi í vikunni var blásið til upplýsingafundar almannavarna á fimmtudag þar sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því að hann hygðist skila heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum að sóttvarnaaðgerðum innanlands. Í kjölfarið boðaði ríkisstjórnin til fundar til að ræða minnisblaðið, sem fór fram á Egilsstöðum síðdegis í gær. Fundurinn stóð yfir í um þrjár klukkustundir, enda um margt að ræða.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti svo nýjar sóttvarnaaðgerðir að loknum fundinum í gærkvöld og taka nýjar innanlandstakmarkanir gildi á miðnætti í kvöld og munu þær gilda í þrjár vikur, til miðnættis föstudaginn 13. ágúst.

Takmarkanirnar fela helst í sér 200 manna samkomutakmark, eins metra nándarreglu og grímuskyldu innanhúss þar sem ekki er hægt að viðhafa metra nándarregluna.

Hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns, líkamsræktarstöðvum og sundstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75 prósent hámarksfjölda leyfilegra gesta og opnunartími veitingastaða, skemmtistaða og kráa verður til klukkan ellefu á kvöldin en síðustu gestir þurfa að yfirgefa staðinn fyrir miðnætti.

Þurfum að sjá hverju aðgerðirnar skila

Þórólfur segist vonast til þess að takmarkanirnar dugi til að hefta útbreiðslu veirunnar.

„Þetta er nú alveg í samræmi við það. Ég lagði nú til að almenn nándarregla yrði tveir metrar en þau ákváðu einn metra. En að öðru leiti var þetta bara í samræmi við það sem ég lagði til og ég hef engar athugasemdir við það,“ segir Þórólfur í samtali við fréttastofu.

„Við þurfum bara að sjá hverju þetta skilar okkur og ef þetta skilar ekki tilætluðum árangri og við förum að sjá aukningu í alvarlegum veikindum þá getur alveg komið til þess að ég komi með nýjar tillögur en við þurfum að sjá hvernig það verður,“ segir Þórólfur.

Alger samstaða innan ríkisstjórnarinnar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði að loknum ríkisstjórnafundi að hann hafi gengið vel. Ítarlega hafi verið farið yfir málin og þau rædd út og inn.

„Við fórum mjög ítarlega yfir tillögur sóttvarnalæknis sem bárust okkur í gærkvöldi. Við héldum ráðherranefndarfund í morgun og rétt eins og við höfum gert hingað til fylgjum við ráðleggingum hans að mestu leiti,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í gær.

Málin hafi verið rædd opinskátt á fundinum.

„Það hefur verið aðalsmerki þessarar ríkisstjórnar að við höfum alltaf getað rætt málin mjög opinskátt og við gerðum það svo sannarlega á þessum fundi. Auðvitað eru ólíkar spurningar og rætt ítarlega um málin en það er alger samstaða um þessa niðurstöðu,“ segir Katrín.

Bjarni Benediktsson, efnahagsráðherra, tekur undir þetta

„Við ræðum allar hliðar mála. Við tökum inn sjónarmið sem við teljum eiga erindi inn í umræðuna og með því erum við ekkert að grafa undan tillögum eða varpa rýrð á mikilvægi þess að fara varlega,“ sagði Bjarni.


Tengdar fréttir

Gjör­breytt lands­lag hjá smitrakningar­teyminu

Yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna segir teymið nú vinna í allt öðru landslagi en áður; hátt bólusetningarhlutfall hafi sitt að segja. Það sé þó mikið að gera, ljóst að veiran hafi dreift sér víða og ekki búið að ná utan um faraldurinn. Í þessari bylgju hafi einn smitaður mest sent upp undir fimmtíu í sóttkví.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×