Innlent

Býst við að farið verði að tillögum þingnefnda um skorður á hámarkshlut fjárfesta

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka Vísir/Egill

Tvö erlend fjármálafyrirtæki og tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins eru kjölfestufjárfestar í Íslandsbanka - og hafa skuldbundið sig til að kaupa 10% hlutafjár. Hlutafjárútboð bankans hófst í morgun og bankastjóri segir stjórnvalda að ákveða hver hámarkshlutur hvers og eins megi verða.

Fjármálaráðherra tilkynnti í lok janúar ákvörðun sína að selja allt að 35%  í Íslandsbanka af 100% hlut ríkisins í bankanum. Salan hófst í dag og lýkur 15. júní. 

Salan fer fram hér á landi og er það í fyrsta skipti sem það gerist hjá  íslensku félagi í alþjóðlegu útboði.

Aðeins Íslendingar og innlendir og erlendir fagfjárfestar geta keypt hlutafé í bankanum. Þetta þýðir að almenningur í öðrum löndum getur ekki fjárfest í bankanum í útboðinu nema að hafa íslenska kennitölu.  

Erlendir og innlendir ráðgjafar og bankar aðstoðuðu Bankasýslu ríkisins og Íslandsbanka við útboðið en stofnunin heldur á hlut ríkisins.

Útboðsgengi er áætlað a á bilinu 71 kr. á hlut og 79 kr. á hlut en endanlegt útboðsgengi verður ákveðið í tilboðsferli.  Lágmarksupphæð á kaupum í bankanum hefur verið ákveðin. 

„Lágmarkið er 50 þúsund krónur og það er stefnt að því að skerða ekki kaup undir milljón. Það fer svo eftir eftirspurninni hvort það tekst,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.

Heildareignir 1,4 billjón krónur, markaðsvirði 150 milljarðar

Heildareignir bankans eru um 1,4  billjón krónur. Áætlað er að ríkið fái 41 milljarð króna fyrir sinn hlut í bankanum en áætlað markaðsvirði hans er 150 milljarðar króna.

„Verðmæti bankans er metið út frá eigin fé hans þannig að það er verið að selja eigin fé,“ segir Birna. 

Þegar eru komnir fjórir kjölfestufjárfesta sem fara samanlagt með 10% í bankanum eða Gildi og Lífeyrissjóður verslunarmanna sem fara hvor um sig með 2,31% hlut.  Bandaríska sjóðstýringarfyrirtækið Capital World Investment hefur skuldbundið sig til að kaupa 3,85% hlut í og RWC breskt eignastýringarfyrirtæki áætlar að fara með 1,54% hlut í bankanum. 

Býst við að farið verði að tillögum þingnefnda um hámarkshluti fjárfesta

Efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis lagði til í janúar að sett verði hámark á hlut hvers tilboðsgjafa, t.d. 2,5–3,0% af heildarhlutafé bankans. 

Birna býst við að miðað verði við það í söluferlinu þó undantekning hafi verið gerð með Capital World Investment sem fer með 3,85% hlut.

„Það er algjörlega seljandans eða ríkisins að ákveða  hvernig fyrirkomulagið á því verður. Það komu leiðbeiningar frá þingnefndum sem verður örugglega stuðst við að einhverju leyti,“ segir Birna. 


Tengdar fréttir

Verðmeta Íslandsbanka á 155 til 242 milljarða króna

Fossar markaðir, sem er á meðal ráðgjafa vegna fyrirhugaðrar sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka, áætlar að virði bankans sé á bilinu 222 til 242 milljarðar króna. Sjálfstæði greiningaraðilinn Jakobsson Capital metur bankann á 155 til 218 milljarða króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×