Innlent

Fyrsta konan til að gegna stöðu skóla­stjóra

Eiður Þór Árnason skrifar
Guðrún Inga Sívertsen útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands árið 1997.
Guðrún Inga Sívertsen útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands árið 1997.

Guðrún Inga Sívertsen hefur verið ráðin nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands (VÍ) og tekur við af Inga Ólafssyni. Hún er fyrsta konan til að gegna starfinu í rúmlega 110 ára sögu VÍ og jafnframt fyrsti skólastjórinn sem hefur útskrifast úr skólanum.

Guðrún Inga hefur verið starfsmanna- og þróunarstjóri Verzlunarskólans undanfarin ár og starfað við skólann nær óslitið frá árinu 2002. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verzlunarskólanum.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Guðrúnar Ingu og með hana við stjórnvölinn getum við ekki annað en verið bjartsýn á framtíð skólans. 

Ég hlakka mikið til samstarfsins við hana, enda er Guðrún Inga gríðarlega öflugur leiðtogi, með skýra framtíðarsýn og því kjörin til að viðhalda og efla það öfluga starf sem unnið hefur verið innan skólans og gert hann að leiðandi framhaldsskóla hér á landi,“ segir Bryndís Hrafnkelsdóttir, formaður skólanefndar Verzlunarskóla Íslands, í tilkynningu.

Ber sterkar taugar til skólans

Guðrún Inga er 45 ára gömul og útskrifaðist sem stúdent af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands árið 1997. Hún lauk BA prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands, er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu og diplómanám í kennslufræði frá sama skóla og er að ljúka AMP námi frá IESE háskólanum í Barcelona á Spáni. Guðrún Inga er gift Trausta Fannari Valssyni, forseta Lagadeildar Háskóla Íslands, og eiga þau þrjá syni.

„Verzlunarskóla Íslands þekki ég vel, bæði sem starfsmaður og fyrrum nemandi, og ber sterkar taugar til hans. Ég hlakka mikið til að taka við starfinu af Inga sem hefur leitt skólann í gegnum miklar breytingar og verið frábær skólastjóri.

Nú er það mitt hlutverk að taka við keflinu í síbreytilegu og krefjandi umhverfi og að halda Verzlunarskólanum áfram í fremstu röð og undirbúa nemendur hans sem best fyrir lífið framundan,“ segir Guðrún í tilkynningu.

Verzlunarskóli Íslands var stofnaður árið 1905 og hefur útskrifað stúdenta frá árinu 1945. Verzlunarskólinn er bekkjarskóli þar sem um 1.050 nemendur stunda nám í dagskóla og um 1.400 nemendur stunda fjarnám. Þar starfa 120 starfsmenn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×