Íslenski boltinn

Lof og last 4. um­ferðar: Reykja­víkur­lið Víkings og Leiknis, Ágúst Eð­vald og varnar­leikur í föstum leik­at­riðum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ágúst Eðvald skoraði tvö mörk í 3-1 sigri FH gegn HK í gærkvöld.
Ágúst Eðvald skoraði tvö mörk í 3-1 sigri FH gegn HK í gærkvöld. Vísir/Vilhelm

Fjórðu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof, hvað á skilið last og hvað flokkast sem hvorki né.

Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Víkingur

Á sunnudagskvöld vann Víkingur frábæran 3-0 sigur á Breiðablik. Það væri í raun hægt að hrósa öllum leikmönnum liðsins en ef við tökum nokkra út fyrir sviga þá er vert að hrósa Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara liðsins. Víkingur hefur farið vel af stað og virðist Arnar hafa lent á réttu blöndunni strax í upphafi, eitthvað sem gekk illa í fyrra.

Viktor Örlygur Andrason var óvænt í hægri bakverði og átti frábæran leik. Fyrir framan hann var Halldór Jón Sigurður Þórðarson einnig mjög öflugur, sérstaklega í fyrri hálfleik. 

Þórður hefur gripið gæsina og staðið sig vel það sem af er leiktíð.Vísir/Vilhelm

Þá hefur Þórður Ingason gengið í gegnum endurnýjun lífdaga en hann átti vægast sagt slaka leiki í þau fáu skipti sem hann spilaði á síðustu leiktíð. Þórður hefur hins vegar sýnt sínar bestu hliðar það sem af er tímabili.

Leiknir Reykjavík

Eftir afhroð á Dalvík gegn KA hefði mátt búast við því að nýliðar Leiknis myndu allavega bogna en annað kom á daginn er liðið tók á móti Fylki á sunnudagskvöld. 

Sigurður Heiðar Höskuldsson á skilið mikið hrós sem og leikmenn liðsins fyrir að rífa sig upp og sækja fyrsta sigur tímabilsins. Það er ljóst að Leiknismenn munu ekki gefa þumlung eftir á heimavelli í sumar með Leiknisljónin dýrvitlaus í stúkunni.

Sigurður Heiðar, þjálfari nýliða Leiknis Reykjavíkur.Vísir/Hulda Margrét

Ágúst Eðvald Hlynsson

Ágúst Eðvald kom á láni til FH stuttu fyrir mót. Það virðist sem leikstíll Hafnfirðinga henti þessum unga miðjumanni vel en Ágúst hefur verið frábær það sem af er tímabili. Áður en hann fór út í atvinnumennsku á síðasta ári var umræðan sú að hann væri ekki að skora nóg en hann er kominn með fjögur mörk nú þegar í öflugu liði FH.

Last

Varnarleikur í föstum leikatriðum

KR tók á móti Val í stórleik 4. umferðar á Meistaravöllum í Vesturbænum í gærkvöldi.  ... Sebastian Hedlund jafnaði metin í 1-1 undir lok fyrri hálfleiks með góðum skalla eftir hornspyrnu Kaj Leo í Bartalsstovu. 

Er þetta þriðji leikurinn í röð sem KR-ingar fá á sig mark eftir fast leikatriði. Arnór Sveinn Aðalsteinsson skoraði sjálfsmark eftir vel útfært fast leikatriði Fylkis í síðustu umferð og Brynjar Ingi Bjarnason skoraði með skalla í 3-1 sigri KA á KR í 2. umferð.

KR-ingar hafa átt erfitt uppdráttar í föstum leikatriðum.Vísir/Hulda Margrét

KR-ingar eru ekki eina liðið sem var í vandræðum með föst leikatriði í umferðinni en eitt marka Leiknis gegn Fylki kom eftir fast leikatriði. Annar leikurinn í röð sem Árbæingar fá á sig mark eftir fast leikatriði. Keflavík fékk einnig á sig mark eftir aukaspyrnu gegn KA og þá skoraði Júlíus Magnússon eftir hornspyrnu gegn Blikum í fyrradag. Ótrúlegt en satt var það ekki með skalla en boltinn skoppaði innan vítateigs áður en Júlíus smellti honum í netið.

Markaleysi ÍA og Stjörnunnar

ÍA og Stjarnan gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í gærkvöld. Liðin eru með aðeins tvö stig þegar fjórar umferðir eru búnar og hafa bæði lið aðeins skorað tvö mörk. Ljóst er að liðin þurfa að spýta í lófana ef þau ætla sér ekki að vera í fallbaráttu fram eftir sumri.

Hvorki né

Reynsluboltarnir Hannes Þór Halldórsson og Gunnar Nielsen - markverðir Vals og FH - fengu báðir á sig mörk í gær sem þeir hafa að öllum líkindum verið ósáttir með. Báðir svöruðu hins vegar og hjálpuðu liðum sínum að sækja dýrmæta sigra. 

Gunnar varði vítaspyrnu á mikilvægu augnabliki í leik HK og FH í gærkvöld.Vísir/Vilhelm

Hannes Þór varði tvívegis meistaralega undir lok leiks í Vesturbænum og sá til þess að Valur fór með þrjú stig frá Meistaravöllum. Gunnar varði vítaspyrnu Stefáns Ljubicic í stöðunni 1-1 í leik sem FH vann á endanum 3-1.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×