Menning

Sinfó fær glæ­nýtt hljóð­færi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá slagverksleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þau Soraya Nayyar, Frank Aarnink, Steef van Oosterhout og Eggert Pálsson, leika á alúfóninn í fyrsta sinn í Eldborg.
Hér má sjá slagverksleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þau Soraya Nayyar, Frank Aarnink, Steef van Oosterhout og Eggert Pálsson, leika á alúfóninn í fyrsta sinn í Eldborg. Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur fengið nýtt hljóðfæri í kistu sína, nefnilega alúfón.

Alúfónn er hljómborðshljóðfæri, sambærilegt við marimbu og sílófón, en nýrra af nálinni og er búið til úr sérstökum álkeilum. Ál er mjög leiðandi málmur fyrir tóna, og þykir því mjög hentugur sem hljómmálmur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveitinni. Þar kemur fram að slagverksdeild sveitarinnar hafi þegar prófað gripinn í Eldborgarsal Hörpu á dögunum. Hljóðfærið er gjöf frá Samál, samtaka álframleiðenda, til sveitarinnar.

„Þessi viðbót í hljóðfærakistu hljómsveitarinnar býður upp á marga nýja möguleika. Nú geta íslensk samtímatónskáld notað rödd þessa hljóðfæris í sínum skrifum. Um leið og tónskáld frétta af svona viðbót byrja þau að skrifa fyrir það í nýjum verkum sínum, og maður er því mjög spenntur að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þetta hljóðfæri,“ er haft eftir Eggert Pálssyni, slagverksleikara hljómsveitarinnar, í tilkynningunni.

Áskell Másson tónskáld hefur þegar samið verk fyrir hljómsveit og alúfón sem vonir standa til að hægt verði að flytja bráðlega. Hann samdi einnig sérstakt verk fyrir hljóðfærið sem þegar hefur verið flutt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×