Körfubolti

Flestallt lokað á Króknum en leikur við Stjörnuna í kvöld: „Mér finnst það svolítið skrýtið“

Sindri Sverrisson skrifar
Tindastóll spilar mikilvægan leik í kvöld í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta, í skugga kórónuveirusmita sem greinst hafa í Skagafirði síðustu daga.
Tindastóll spilar mikilvægan leik í kvöld í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta, í skugga kórónuveirusmita sem greinst hafa í Skagafirði síðustu daga. vísir/hulda

Þrátt fyrir að skólum, fyrirtækjum, sundlaugum og skíðasvæði hafi verið lokað í Skagafirði vegna kórónuveirusmita þá verður spilað þar í kvöld í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta.

Tindastóll tekur á móti Stjörnunni úr Garðabæ en engir áhorfendur verða leyfðir á leiknum. Tindastóll þarf á sigri að halda til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni en tapi liðið þarf það að treysta á að önnur úrslit falli með því í kvöld.

Helgi Rafn Viggósson, leikmaður Tindastóls, segir það skrýtið að liðið sé sett í þá stöðu að þurfa að spila í kvöld á meðan að enn sé verið að ná utan um smit í samfélaginu og fólk fari varla út úr húsi. 

Hann telur að Körfuknattleikssamband Íslands ætti að grípa inn í, miðað við hve aðgerðir á Sauðárkróki til að hindra útbreiðslu veirunnar séu að öðru leyti harðar.

„Það er verið að stíga fast til jarðar, fyrirtæki og skólar hafa lokað, en þá sér KKÍ sér ekki leik á borði að gera neitt. Mér finnst það svolítið skrýtið,“ segir Helgi Rafn.

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra ákvað að þó að íþróttaæfingar barna og unglinga í Skagafirði yrðu bannaðar út þessa viku þá yrðu æfingar í meistaraflokki áfram leyfðar, sem og keppni án áhorfenda. Karlalið Tindastóls í körfubolta má því spila í kvöld, sem og kvennalið Tindastóls í fótbolta sem sækir Fylki heim á morgun.

Leikmenn sloppið við sóttkví hingað til

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari körfuboltaliðs Tindastóls, sagði við Vísi að nú í hádeginu væri hann enn með alla leikmenn tiltæka fyrir leikinn í kvöld:

„Liðið hefur alveg sloppið við sóttkví, alla vega eins og er. En það er stutt á milli og þetta gæti auðvitað breyst með einu „testi“. Við æfðum ekki í gær því það voru nokkur spurningamerki varðandi test hjá fólki í kringum okkur, en svo komu þau öll neikvætt út,“ sagði Baldur.

Þjálfarinn vildi lítið barma sér yfir því að hafa ekki stuðning áhorfenda í kvöld, á meðan að 150 áhorfendur eru leyfðir í smithólfi á leikjum annars staðar á landinu.

Yrði mikið áfall að missa af úrslitakeppni

„Þetta er bara veruleikinn í dag. Þetta er búið að vera furðulegt tímabil og maður hefur þurft að eiga við alls konar hluti út af þessum faraldri. Menn eru orðnir sjóaðir í að takast á við hindranir.

Vonandi næst utan um þessi smit sem fyrst og aðalatriðið er að það sé í lagi með fólk. Öryggi fólks er númer eitt, tvö og þrjú, ekki að hafa áhorfendur á leik. Þeir koma þegar það verður í lagi,“ sagði Baldur.

Eins og fyrr segir á Tindastóll, sem situr í 7. sæti, á hættu að dragast niður í 9. eða 10. sæti og missa þannig af úrslitakeppninni. Baldur tók undir að það yrði áfall ef svo færi:

„Já, já, eðlilega yrði það mikið áfall. Við ætlum að selja okkur dýrt í leiknum í kvöld og vinna.“

Stöð 2 Sport mun sýna frá öllum völlum í lokaumferðinni í sérstakri Körfuboltakvöldmessu í kvöld og hefst útsending kl. 18.45.


Tengdar fréttir

Hatrið ekki slíkt að menn vilji láta Njarðvík falla

Keflvíkingar gætu komist í þá stöðu í kvöld að geta sent erkifjendur sína í Njarðvík niður í 1. deild, með því að tapa gegn Hetti á Egilsstöðum. Þeir hafa hins vegar meiri áhuga á því Njarðvík haldi sér uppi og að liðin mætist í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×