Viðskipti innlent

Al­ætu-Júmbó hafði betur gegn full­trúum græn­kera

Eiður Þór Árnason skrifar
Á þessari samsettu mynd má sjá merkin þrjú, Jömm, Oatly og Júmbó.
Á þessari samsettu mynd má sjá merkin þrjú, Jömm, Oatly og Júmbó. Vísir/Samsett

Neytendastofa telur að ekki séu nógu mikil líkindi með merkjum Júmbó og Jömm annars vegar eða Júmbó og Oatly hins vegar til að skapa hættu á því að neytendur ruglist á þeim. Nokkur umræða skapaðist um málið í október 2019 þegar sumir höfðu orð á því að ný umbúðahönnun Júmbó líktist hönnun áðurnefndra vörumerkja.

Sænski haframjólkurframleiðandinn Oatly AB og Veganmatur ehf. sem framleiðir matvörur og rekur veitingastað undir merkjum Jömm kvörtuðu í kjölfarið sameiginlega til Neytendastofu sem hefur nú birt niðurstöðu sína í málinu.

Gæti haft áhrif á ákvörðun neytenda

Fram kemur á vef Neytendastofu að fyrirtækin hafi gert athugasemd við notkun Sóma ehf. á auðkenninu Júmbó í nýlega breyttri mynd. Báðir aðilar sérhæfa sig í framleiðslu á matvörum sem innhalda engar dýraafurðir.

„Í kvörtuninni er rakið að Veganmatur og Oatly telji JÚMBÓ svo líkt auðkennunum JÖMM og OATLY sameiginlega að neytendur gætu ruglast á þeim. Töldu Veganmatur og Oatly jafnframt að viðskiptahættir Sóma væru til þess fallnir að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um viðskipti og raska verulega fjárahagslegri hegðun þeirra.“

Í ákvörðun Neytendastofu segir að Sómi hafi hafnað þessum athugasemdum og meðal annars vísað til þess að takmörkuð samkeppni væri milli fyrirtækjanna. Þar að auki nytu Veganmatur og Oatly ekki sameiginlegra hagsmuna og því væri ekki hægt að fjalla um líkindi Júmbó við Jömm og Oatly í sameiningu.

„Þegar JÚMBÓ væri borið saman við JÖMM og OATLY í sitthvoru lagi væru líkindin ekki til þess fallin að neytendur ruglist á þeim.“

Fannst hönnunin kunnugleg

Þegar umræða um meint líkindi umbúðanna stóð sem hæst í október höfnuðu forsvarsmenn Sóma því í samtali við Vísi að horft hefði verið til Jömm og Oatly við hönnun á nýjum umbúðum undir merkjum Júmbó.

Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir, framkvæmdastjóri Veganmatar og eigandi Jömm, sagði þá við Vísi að viðskiptavinir hafi sett sig í samband við fyrirtækið til að furða sig á nýjum umbúðum Júmbó.

„Fyrst fengum við ábendingu frá konu sem sendi okkur mynd af þessu og ætlaði að grípa sér nýja Jömm-grautinn sem hún taldi sig hafa séð. Þegar hún kom langleiðina á kassann fattaði hún svo að þetta var ekki Jömm heldur Júmbó,“ sagði Sæunn í október.

„Okkur brá pínulítið að sjá þetta, okkur fannst þetta svona svolítið kunnuglegt.“

Sómi og Oatly ekki í beinni samkeppni

Neytendastofa fellst í megindráttum á rök Sóma. Í fyrsta lagi bæri að meta líkindi auðkennisins Júmbó og auðkennanna Jömm og Oatly í sitthvoru lagi, þar sem ekki væri lagagrundvöllur fyrir því að meta líkindi auðkennis við tvö auðkenni sameiginlega sem séu í eigu tveggja fyrirtækja. 

Þá taldi stofnunin að Oatly og Sómi væru ekki keppinautar á markaði þar sem fyrirtækin væru ekki að framleiða samskonar vörur. Þó væri ákveðin skörun á starfsemi Veganmatar og Sóma en báðir aðilar selja samlokur og aðra tilbúna rétti í matvöruverslunum.

Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu eftir að hafa framkvæmt heildarmat á útliti allra vörumerkjanna að ekki væri tilefni til aðgerða af hálfu hennar í málinu.

Þannig féllst Neytendastofa ekki á að notkun Sóma á auðkenninu Júmbó fæli í sér óréttmæta viðskiptahætti gagnvart Vegnmat og Oatly eða að notkunin væri villandi gagnvart neytendum.


Tengdar fréttir

„Maður eigin­lega móðgast þetta er svo lé­leg út­skýring“

Innanhúshönnuðurinn Rut Káradóttir sakar hönnuð Slippfélagsins um að hafa tekið litakort sitt ófrjálsri hendi og gert að sínu eigin. Hún segir málið vonbrigði og greinilegt að höfundaverk séu ekki metin að verðleikum á Íslandi. Forsvarsmaður Slippfélagsins og hönnuður kortsins hafna ásökununum og vísa til eldri litakorta.

Allt í hnút hjá Svarta sauðnum og Yarmi

Erfiðar deilur tveggja íslenskra handverksfyrirtækja hafa vakið upp spurningar um hugverkaumgjörð og hönnunarvernd hér á landi. Fyrirtækið Yarm er sakað um að hafa lengi reynt að koma í veg fyrir prjónavörusölu samkeppnisaðila án árangurs. Í framhaldinu hafa deilurnar farið stigvaxandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×