Glæsimark Ha­kimi dugði ekki til í stórleiknum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hakimi fagnar markinu með Lautaro Martinez og Romelu Lukaku kemur askvaðandi.
Hakimi fagnar markinu með Lautaro Martinez og Romelu Lukaku kemur askvaðandi. Claudio Villa/Getty

Lorenzo Pellegrini kom Roma yfir á sautjándu mínútu. Arkitektinn var Henrikh Mkhitaryan en hann hefur farið á kostum á tímabilinu. Staðan 1-0 í leikhléi.

Króatinn Milan Skriniar jafnaði metin á 56. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði Achraf Hakimi annað markið. Markið var einkar fallegt en vinstri fótar skot hans fór í slá og inn.

Það reyndist þó ekki sigurmarkið þar sem Gianluca Mancini skoraði jöfnunarmarkið á 86. mínútu og lokatölur 2-2.

Staða liðanna er því að mestu óbreytt eftir leikinn. Inter er með 37 stig, þremur stigum frá toppliði AC Milan, en Roma er í þriðja sætinu með 34 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira