Fótbolti

Brynjari þykir vænst um tímann hjá Stoke og Reading

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brynjar Björn Gunnarsson.
Brynjar Björn Gunnarsson. Mynd/Nordic Photos/Getty

Fyrrum knattspyrnumaðurinn og nú þjálfarinn, Brynjar Björn Gunnarsson, segir að það sem standi upp úr á hans ferli í atvinnumennsku sé tíminn hjá ensku félögunum Stoke og Reading.

Brynjar átti ansi myndarlegan atvinnumannaferil sem hófst hjá Vålerenga í Noregi árið 1998 og endaði fimmtán árum síðar hjá Reading í ensku B-deildinni. Hann spilaði meðal annars hjá Stoke er þar myndaðist Íslendinganýlenda eftir að Íslendingar keyptu félagið og Guðjón Þórðarson var ráðinn stjóri.

„Það sem stendur upp úr eru árin hjá Stoke og Reading. Það var mjög gaman þegar við byrjum að safnast saman í Stoke og fórum á Wembley og unnum bikar þó hann sé ekki stór. Framrúðubikarinn,“ sagði Brynjar.

„Svo fórum við upp um deild sem var lokamarkmiðið hjá Stoke. Þetta var mjög erfitt ár, síðasta árið mitt í B-deildinni og fyrsta ár Stoke í langan tíma í þeirri deild. Ég yfirgaf þá svo 2003/2004 og fer á smá flakk til Nottingham Forest og Watford áður en ég enda í Reading.“

Brynjar átti afar farsælan feril hjá Reading. Hann var þar í átta ár og spilaði hann spilaði rúmlega 140 leiki fyrir félagið. Þar með í frægum leik á Anfield.

„Mér leið vel þar og gekk vel. Það var umhverfi sem var þægilegt. Það var krafist mikið af þér og ég náði að spila mig inn í þetta. Það var borinn virðing fyrir því sem maður gerði og hafði gert sem varð til þess að ég var þarna í þrjú til fjögur ár lengur en einhver annar hefði verið,“ sagði Brynjar en innslagið má sjá hér að neðan.

Klippa: Sportið í dag - Brynjar Björn um tímann hjá Stoke og Reading

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×