Þrjátíu ár frá snjóflóðum 20. desember 2004 00:01
Í dag eru þrjátíu ár liðin frá því að tvö snjóflóð féllu á Neskaupstað. Tólf manns fórust í flóðunum. Minningarathafnir um fórnarlömb flóðanna verða haldnar bæði í Neskaupstað og Reykjavík í dag. Alls féllu átta snjóflóð á Norðfirði þennan dag fyrir þrjátíu árum. Tvö þeirra féllu á athafnasvæði bæjarins, það fyrra rétt fyrir klukkan tvö eftir hádegi. Urðu bæjarbúar þess fyrst varir að rafmagn fór af bænum. Tuttugu mínútum seinna féll svo annað flóð. Alls lentu 25 manns í flóðunum tveimur, og nokkrir björguðust giftusamlega. Í kvöld verður minningarstund í kirkjunni í Neskaupsstað um þá tólf sem fórust. Kveikt verður á tólf kyndlum við minnismerki þeirra og er svo bæna og kyrrðarstund í kirkjunni strax á eftir. Minningarathöfn fyrir brottflutta Norðfirðinga verður haldinn í Reykjavík í dag klukkan sex. Hilmar Arason, sem er í undirbúningsnefnd fyrir athöfnina, segir að athöfnin verði í Fella- og Hólakirkju. Það verði fyrrverandi sóknarprestur Norðfirðinga, séra Svavar Stefánsson, sem sjái um athöfnina, sem verði stutt, en síðan bjóði Norðfirðingafélagið upp á kaffi á eftir. Hilmar var 12 ára gamall þegar flóðið féll og segist hafa skynjað að allt hafi farið á annan endann og fólk hafi hlaupið um. Hann segist eiga erfitt með að svara því hvort fólk komist yfir atburðinn, en hins vegar hafi fólk ekki farið að vinna úr atburðinum fyrr en löngu síðar, enda hafi ekki verið til neitt sem hét áfallahjálp í þá daga. Hilmar segir að sumir hugsi enn daglega um atburðinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira