Rússneskir ráðamenn ævareiðir 9. september 2004 00:01
Ráðamenn Rússlands eru ævareiðir og segja Vesturlönd sýna tvískinnung í afstöðunni til hryðjuverkamanna. Þeir vilja að umheimurinn bregðist eins við hryðjuverkum í Rússlandi og Bandaríkjunum. Al-Kaída og hryðjuverkamenn Tsjetsjena eru bara tvær hliðar á sama tening, segja rússnesk stjórnvöld og hafa brugðist afar illa við öllum tillögum þess efnis að tími sé kominn að ræða við uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu. Utanríkisráðherra Rússa sagði í dag að þessi afstaða Vesturlanda sýndi tvískinnung sem væri sprottinn upp úr kalda stríðs hugsunarhætti. Flestir fréttaskýrendur og fræðimenn sem fjallað hafa um málið eru þó á öndverðum meiði og segja að ekki sé hægt að leggja þetta að jöfnu; Al-Kaída annars vegar og alla aðskilnaðarhreyfingu Tsjetsjena hins vegar. Vissulega eru margir í aðskilnaðarhreyfingu Tsjetsjena ótíndir hryðjuverkamenn og það er líka staðreynd að Al-Kaída hefur orðið nokkuð ágengt í því að efla tengsl sín við þessa menn. Hins vegar fer því fjarri að allir þeir Tsjetsjenar sem vilja sjálfstæði héraðsins séu á bandi hryðjuverkamanna eins og rússnesk stjórnvöld vilja oft láta líta út fyrir enda er sjálfstæðishreyfingin margklofin. Rússar hafa hins vegar alfarið neitað að ræða við alla aðskilnaðarsinna, líka þá hófsamari eins og Aslan Maskhadov hefur jafnan verið talinn, og nú hefur verið sett fé til höfuðs honum. Margir vilja því að einhverju leyti kenna rússneskum stjórnvöldum sjálfum um það hversu óviðráðanlegt þetta vandamál er orðið þar sem fimm ára blóðugt stríð virðist aðeins hafa alið af sér aukinn fjölda harðlínumanna. Mikhaíl Gorbachev, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna sálugu, er einn af þeim sem nú hefur hvatt stjórnvöld í Rússlandi til að brjóta odd af oflæti sínu og hefja einhvers konar viðræður við sjálfstæðissinna í Tsjetsjeníu. Myndin sýnir ættingja fórnarlamba hryðjuverkanna í Beslan á dögunum syrgja ástvini sína.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira