Fundaði með forsætisráðherra Svartfjallalands Atli Ísleifsson skrifar 29. júní 2016 13:21 Milo Đukanović og Sigurður Ingi Jóhannsson. Mynd/forsætisráðuneytið
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fundaði með Milo Đukanović, forsætisráðherra Svartfjallalands, fyrr í dag. Đukanović sækir Ísland heim í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því að stofnað var til sjálfstæðs ríkis Svartfjallalands. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að heimsóknin sé skipulögð í þakklætisskyni við Ísland fyrir stuðning og vegna þess að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Svartfjallalands árið 2006. „Einnig er með heimsókn forsætisráðherra Svartfjallalands verið að þakka Íslandi fyrir að vera fyrst ríkja, tíu árum síðar, til að staðfesta viðbótarsamning við Norður-Atlantshafssamninginn sem varðar aðild Svartfjallalands að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Þess má geta að þegar öll ríki NATO hafa staðfest viðbótarsamninginn verður Svartfjallaland 29. aðildarríki bandalagsins.“ Ráðherrarnir ræddu á fundi sínum samskipti ríkjanna og voru sammála um að þau mætti auka og treysta enn frekar á ýmsum sviðum. Þá ræddu þeir meðal annars um öryggis- og varnarmál og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um úrsögn úr Evrópusambandinu. Sigurður Ingi segir að fundurinn hafi verið afskaplega ánægjulegur og það ylji að finna þá miklu vinsemd og virðingu sem okkur sé sýnd með heimsókn forsætisráðherra Svartfjallalands í tilefni af því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Svartfjallalands þann 8. júní 2006 og vera fyrst ríkja til að staðfesta viðbótarsamning um aðild Svartfellinga að NATO. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Đukanović haldi af landi brott síðdegis í dag, að loknum hádegisverði sem Sigurður Ingi Jóhannsson býður til, honum til heiðurs.
Tengdar fréttir Svartfellingar á leið inn í NATO Skrifa undir samkomulag við bandalagið í dag. 19. maí 2016 15:23 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira