Kona handtekin vegna stórbrunans í París Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2019 08:02 Slökkviliðsmenn stóðu í ströngu í París í nótt. Þeim tókst að bjarga fimmtíu manns af þaki hússins og út um glugga íbúða. Vísir/AP
Lögreglan í París er með konu í haldi vegna rannsóknar á upptökum eldsvoðans sem varð að minnsta kosti átta manns að bana í borginni í nótt. Saksóknari segir að grunur leiki á að eldurinn hafi kviknað af „glæpsamlegum“ orsökum. Eldur kviknaði í átta hæða íbúðarhúsi við Erlanger-götu í 16. hverfi Parísar, einu efnaðasta og rólegasta hverfi borgarinnar. Fólkið sem lést er sagt hafa verið íbúar í húsinu. Auk þeirra eru fjörutíu slasaðir, að sögn Reuters-fréttastofunnar. AP-fréttastofan hefur eftir Remy Heitz, saksóknara, að konan sem var handtekin sé íbúi í húsinu. Hún hafi verið handtekin í nágrenni þess. Rannsóknin sé þó á frumstigum. Upptök eldsins eru talin hafa verið á efri hæðum hússins og hann hafi síðan borist um bygginguna. Slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlögum eldsins fyrir dögun. Þeir höfðu áður bjargað um fimmtíu manns af þaki hússins og út um glugga íbúða. Sex slökkviliðsmenn eru á meðal þeirra slösuðu, að sögn AP-fréttastofunnar.
Frakkland Tengdar fréttir Átta látnir í stórbruna í París Óljóst er hvað olli brunanum 5. febrúar 2019 06:59 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira