Vonskuveður fyrir norðan 25. desember 2004 00:01
Vonskuveður á Norðurlandi setti strik í reikninginn hjá mörgum. Fólk komst hvorki lönd né strönd og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og morgun. Á Akureyri gekk vel framan af kvöldi, en um klukkan hálf þrjú um nóttina barst lögreglu tilkynning um að togari í slipp væri við það að losna frá bryggju. Með aðstoð dráttarbáts tókst að koma togaranum að kanti á ný. Slökkvilið Akureyrar óskaði svo eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Súlna vegna sjúkraflutninga frá Fnjóskadal. Fara átti með lækni og sjúkraflutningsmann á sérútbúnum bílum sveitarinnar, en það reyndist þó ekki nauðsynlegt þar sem sjúklingurinn, sem hafði ofkælst alvarlega, var farinn að sýna töluverð batamerki og talinn úr lífshættu. Að sögn lögreglumanna á Akureyri er bærinn nánast ófær, nema hvað að vel útbúnir jeppar komast áfram. Mælt er með því að bæjarbúar haldi sig heima við, en útvarpsmessu sem átti að vera klukkan ellefu var frestað. Mjög blint er, skyggnið í besta falli tveir til fimm metrar og hafa lögregla og björgunarsveitarmenn á sérbúnum bílum þurft að aðstoða fólk við að komast til vinnu í morgun. Á Húsavík er einnig allt ófært, en þar taldi viðmælandi fréttastofunnar að tekið væri að hlýna, því væri snjórinn þyngri og fjúk ekki neitt. Þar voru lögreglumenn og björgunarsveitir að störfum í alla nótt við að koma fólki til síns heima. Lögreglumaður á Húsavík sagði elstu menn ekki muna eftir sambærilegum veðurham á jólum, en í bænum eru mannhæðarháir skaflar á köflum og einingis fyrir vel búna og breytta jeppa sem búið er að hleypa einhverju lofti úr dekkjunum á að komast leiðar sinnar og það dugir ekki alls staðar til.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Hátt hlutfall karlmanna á tvígtugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Sjá meira