"Vítahringur manneklu, álags og óánægju“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. september 2013 19:05
Formaður Félags íslenskra lyflækna og yfirlæknir nýrnasjúkdóma segir að meiriháttar átak þurfi til að snúa við vanda lyflækningasviðs Landspítalans. Þetta snúist ekki lengur bara um peninga heldur langvinnan vanda inni á spítalanum og neikvætt andrúmsloft sem þar hafi fengið að gerjast. Það virðist hafa myndast samstaða í opinberri umræðu um vanda Landspítalans. Þetta birtist í viðhorfum stjórnenda spítalans, heilbrigðisstarfsmanna og stjórnmálamanna. Stöð 2 hefur að undanförnu fjallað um vanda lyflækningasviðsins sem er eitt mikilvægasta svið Landspítalans en léleg mönnun lækna sviðsins þykir í senn óboðleg og óforsvaranleg að mati þeirra sem þar starfa. Vandi lyflækningasviðs Landspítalans er löngu hættur að snúast eingöngu um aukið fjármagn heldur snýst um viðvarandi gremju og óviðunandi starfsaðstæður starfsmanna. Þetta er mat Runólfs Pálssonar, formanns Félags íslenskra lyflækna, en hann er sérfræðingur í nýrnasjúkdómum á Landspítalanum.Vandinn aldrei meiri Runólfur segist aldrei hafa áður séð vandann eins og hann birtist núna. „Staðan núna er sú að það er miklu umfangsmeiri og alvarlegri vandi sem steðjar að heldur en áður hefur verið. Það hefur skapast vítahringur manneklu, óhóflegs verkefnaálags, óánægju og lélegs starfsanda,“ segir Runólfur. Hann segir að staðan eigi sér langan aðdraganda. „Við höfum ekki hlúð nægilega vel að þeim dýrmæta mannauði sem við höfum yfir að ráða í formi sérfræðilækna og ungra lækna. Fólk er farið að leita annað.“Endalaust að slökkva elda Helga Ágústa Sigurjónsdóttir lyf- og innkyrtlalæknir tekur í sama streng. „Við erum endalaust að slökkva elda og erum búin að vera að gera það í marga mánuði. Þetta sumar var hreint ótrúlegt, hvernig það var leyst. Sérfræðiþjónustan er í húfi. Við erum eingöngu að sinna því sem verður ekki geymt til morguns. Göngudeildarstarfsemin er í húfi,“ segir hún. Helga Ágústa segir að sérfræðingar geti ekki sinnt verkefnum sínum eins og að leiðbeina unglæknum og sérfræðiráðgjöf inni á öðrum deildum. Þannig þurfa sérfræðingar á óskyldu sviði að sinna ráðgjöf við t.d skurðaðgerðir en geti það ekki vegna manneklu. „Á meðan við festumst í deildarlæknavinnu í ljósi skorts á þeim starfskrafti þá er augljóst hvað er í húfi annars staðar í húsinu,“ segir Helga. Hún segir vantraust í garð yfirstjórnar spítalans og heilbrigðisyfirvalda. „Það er algjörlega augljóst mál að það er forgangsatriði að reyna að fjölga unglæknum á lyflækningasviði. Hvernig við gerum það eins og staðan er í dag er ekki algjörlega augljóst mál. Núna þarf fyrst og fremst að einbeita sér að því að halda þeim læknum sem eru í dag. Það eru margir að íhuga uppsagnir eins og ástandið er orðið þar sem traust okkar til breytinga ofan frá er ekki ríkjandi meðal okkar lengur. Okkur finnst eins og tíminn hafi verið notaður í annað en aðgerðir síðustu mánuði þátt fyrir endurteknar umleitanir okkar til að fá fólk til þess að gera eitthvað.“
Tengdar fréttir Verðum að loka Hörpu - ef það er það sem þarf Kári Stefánsson, læknir og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir heilbrigðiskerfið hafa verið holað að innan og hann þekki dæmi um ótímabæran dauða sjúklinga vegna þessa. 10. september 2013 13:15 Vill standa vörð um Landspítalann en getur ekki lofað auknu fjármagni Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, segir unnið að lausn á vanda Landspítalans. Hann segist vilja standa vörð um spítalann, en segist ekki geta lofað auknum fjárframlögum. 10. september 2013 18:30 Staðan á lyflækningasviði Landspítalans sögð mjög alvarleg Frá og með 1. október næstkomandi munu aðeins sex deildarlæknar sinna stöðugildum tuttugu og fimm lækna á lyflækningasviði Landspítalans. Staðan á spítalanum er mjög alvarleg að sögn formanns Læknafélagsins. 9. september 2013 19:00 Landspítalinn kominn í þrot Læknar á Landsspítalanum segja spítalann kominn í þrot og grípa þurfi til aðgerða nú þegar til að styrkja starfsemi hans. Skipulag spítalans bitni á sjúklingum og starfsfólki. 6. september 2013 15:03 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sjá meira
Verðum að loka Hörpu - ef það er það sem þarf Kári Stefánsson, læknir og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir heilbrigðiskerfið hafa verið holað að innan og hann þekki dæmi um ótímabæran dauða sjúklinga vegna þessa. 10. september 2013 13:15
Vill standa vörð um Landspítalann en getur ekki lofað auknu fjármagni Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, segir unnið að lausn á vanda Landspítalans. Hann segist vilja standa vörð um spítalann, en segist ekki geta lofað auknum fjárframlögum. 10. september 2013 18:30
Staðan á lyflækningasviði Landspítalans sögð mjög alvarleg Frá og með 1. október næstkomandi munu aðeins sex deildarlæknar sinna stöðugildum tuttugu og fimm lækna á lyflækningasviði Landspítalans. Staðan á spítalanum er mjög alvarleg að sögn formanns Læknafélagsins. 9. september 2013 19:00
Landspítalinn kominn í þrot Læknar á Landsspítalanum segja spítalann kominn í þrot og grípa þurfi til aðgerða nú þegar til að styrkja starfsemi hans. Skipulag spítalans bitni á sjúklingum og starfsfólki. 6. september 2013 15:03