Áhuginn vaknaði í tölvuleik 10. maí 2005 00:01 "
Rosalega ertu fullorðinslegur. Ertu ekki bara fimmtán ára?" spyr blaðakona furðu lostin þegar Birgir svarar í símann. "Jú, ég heyri mjög oft að ég sé fullorðinslegur. Ég er líka með svo djúpa rödd," segir Birgir og hlær. Birgir hefur verið veikur fyrir bílum alla tíð og þegar hann var sjö ára kunni hann flest öll nöfn bílaframleiðanda heimsins utan að. "Ég man eftir fyrstu kynnum mínum af Formúlu 1. Það var sumarið 1999. Pabbi var að horfa og ég gekk inn í stofu og sá einn bílinn taka eina beygju og fussaði og sveiaði," segir Birgir sem er samt harður Formúlu maður í dag. "Áhuginn á formúlunni kviknaði um haustið 2000 þegar ég fékk tölvuleik í gjöf sem heitir Formula One 2000. Ég hef náttúrulega alltaf haft mikinn bílaáhuga og kappaksturinn var næsta skref." Sumarið 2001 tók Birgir upp á því að búa til tímarit sem hann kallaði F1-fréttir og var eingöngu um formúluna. Þegar leið á veturinn var Birgir búinn að eyða nógu bleki úr prentara föður síns þannig að hann bjó til vefsetrið F1 Center sem var upphaflega allt á ensku og hýst á fríu vefsvæði. Í fyrrasumar einfaldaði Birgir vefsvæðið og snaraði því yfir á íslensku. "Go.is voru svo góðir að hýsa síðuna frítt fyrir mig á f1center.go.is. En ætlunin er auðvitað að græða kannski smá pening á þessu einhvern daginn en það kemur allt í ljós." Það mætti halda að blaðamennskan og vefsíðan væru nóg fyrir Birgi en svo er aldeilis ekki. "Ég er ósköp venjulegur unglingur. Ég ber út blöð, fer reglulega í sjoppuna með vinum mínum, er á fullu í félagsstarfi í skólanum og æfi sund með keppnishópi sundfélagsins Ægis sem hefur reyndar setið aðeins á hakanum að undanförnu. Ég kann ekki að segja nei. Ég tek alltaf að mér alltof mikið og enda stundum á því að gera tvennt í einu. En ég geri alltaf mitt besta og ef ég fæ tækifæri þá verð ég að grípa það. Stundum fer ég oft á dag á Formúlu 1 síður á netinu og uppfæri vefsvæðið mitt stöðugt. Svo fer mikill tími í heimildavinnu fyrir greinarnar í Bílar og sport þannig að það er nóg að gera," segir Birgir sem er staðráðinn í því að læra fjölmiðlafræði í útlöndum eftir stúdentspróf. En er bílaáhugamaðurinn ekki búinn að kaupa sér bíl þótt hann vanti tvö ár í sjálft prófið? "Ég var komin með aðra höndina á bíl sem ég ætlaði að safna mér fyrir en hann var keyptur frá mér. Ég er náttúrulega eins og aðrir unglingar -- kann ekki að safna. En mig langar í gamlan, helst gangfæran Land Rover. Það væri fínt að hafa ár til að gera við hann þannig að ég gæti farið beint á götuna þegar ég fæ prófið. Ég fæ reyndar æfingarakstursleyfi í sumar og hlakka mikið til þess."
Bílar Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira