Ef einhver leikur er sex stiga leikur, þá er það þessi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. september 2014 06:00 Haukur Baldvinsson og félagar í Fram hafa unnið þrjá af síðustu fimm leikjum. Vísir/Stefán
Það verður mikið undir þegar Fram og Fjölnir mætast á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik 19. umferðar Pepsi-deildarinnar. Hörður Magnússon, stjórnandi Pepsi-markanna og íþróttafréttamaður á Stöð 2, segir mikilvægi leiksins gríðarlegt: „Menn tala oft fjálglega um sex stiga leiki, en ef einhver leikur er sex stiga leikur þá er það þessi. Fjölnismenn eru í verri stöðu og með sigri geta þeir sprengt fallbaráttuna upp og dregið fleiri lið niður.“ Fjölnismenn sitja í 11. og næstneðsta sæti deildarinnar með 16 stig, en liðið hefur aðeins unnið einn sigur í síðustu 16 deildarleikjum. Framarar eru með 18 stig, en Safamýrarpiltar hafa unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum. „Framarar hafa sýnt nokkurn stöðugleika í síðustu leikjum og með sigri fara þeir langt með að bjarga sér,“ segir Hörður og bætir við: „Bjarni Guðjónsson virðist hafa fundið jafnvægi í liðinu með Orra Gunnarsson í stöðu varnarsinnaðs miðjumanns. Þá hafa leikmenn eins og Jóhannes Karl Guðjónsson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson komið sterkir inn í síðustu leikjum.“ Fjölnismenn hafa aðeins unnið þrjá leiki í deildinni, en tveir þessara sigra hafa komið gegn botnliði Þórs. Hörður segir að þrátt fyrir þetta slæma gengi sé ýmislegt í Fjölnisliðið spunnið: „Fjölnismenn hafa verið inni í flestum leikjum að undanskildum leiknum gegn FH í síðustu umferð (sem tapaðist 4-0). Vandamál Fjölnis hefur verið markaskorun, en þeir hafa engan afgerandi markaskorara. “ „Markvörðurinn Þórður Ingason hefur verið þeirra besti maður í sumar og mikið mun mæða á honum á morgun,“ segir Hörður, en Gunnar Már Guðmundsson, Þórir Guðjónsson og Christopher Tsonis eru markahæstir í liði Fjölnis með fjögur mörk hver. Sá fyrstnefndi snýr aftur úr leikbanni í kvöld ásamt fyrirliðanum Bergsveini Ólafssyni. Fram þekkir þessa stöðu ágætlega, en liðið hefur meira og minna verið í fallbaráttu alla þessa öld. Hörður segir að sú reynsla geti nýst Safamýrarliðinu á endasprettinum: „Framarar hafa gert það að listgrein að bjarga sér frá falli á haustin, en hins vegar eru ekki margir í liðinu nú sem hafa tekið þátt í fallbaráttu áður. Fjölnismenn hljóta að hafa búið sig undir að vera í þessari stöðu og þeir hljóta að vera hæstánægðir ef liðið heldur sæti sínu í deildinni,“ sagði Hörður að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira