Körfubolti

Tryggvi og félagar máttu þola svekkjandi tap

Ísak Hallmundarson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason.
Tryggvi Snær Hlinason. getty/Oscar J. Barroso

Tryggvi Hlinason og liðsfélagar hans í Zaragoza lutu í lægra haldi fyrir Fuenlabrada í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Zaragoza var yfir nánast allan leikinn, staðan í hálfleik 48-33 þeim í vil og fyrir lokaleikhlutan var liðið enn fjórtán stigum yfir, 70-56. Fuenlabrada tók hinsvegar öll völd í fjórða leikhluta sem þeir unnu 26-11 og lokatölur í leiknum 82-81 Fuenlabrada í vil.

Tryggvi skoraði átta stig í leiknum, sem öll komu í fyrri hálfleik, og þar að auki tók hann fimm fráköst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×