Vardy kláraði Úlfana

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jamie Vardy hjá Leicester City.
Jamie Vardy hjá Leicester City. Getty/Leila Coker

Leicester City fékk Wolves í heimsókn í öðrum leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en bæði lið hafa byrjað mótið vel og eru í efri hluta deildarinnar.

Leikurinn var aðeins fimmtán mínútna gamall þegar boltinn hafði viðkomu í hönd Max Kilman í vítateig Úlfanna og fengu heimamenn vítaspyrnu eftir að atvikið hafði verið skoðað í VAR.

Markamaskínan Jamie Vardy fór á vítapunktinn og skoraði af öryggi.

Leicester var aftur dæmd vítaspyrna á 39.mínútu þegar Rayyan Ait Nouri braut klaufalega af sér innan vítateigs. Í þetta skiptið sá Rui Patricio við Vardy.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og fóru heimamenn því með 1-0 sigur af hólmi og eru því á toppi deildarinnar en Liverpool getur endurheimt toppsætið þegar liðið mætir Man City innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira