Tíska og hönnun

HönnunarMars 2021 fer fram í maí

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þórey Einarsdóttur stjórnandi HönnunarMars
Þórey Einarsdóttur stjórnandi HönnunarMars Vísir/Vilhelm

HönnunarMars á næsta ári verður haldin í maí. Stærsta hönnunarhátíð landsins fer fram dagana 19-23. maí í stað þess að fara fram í mars. Opnað verður fyrir umsóknir þátttakanda 2. nóvember. 

„Stjórn hátíðarinnar tók ákvörðun þess efnis, bæði í ljósi yfirstandandi heimsfaraldurs og óvissunni sem því fylgir og sömuleiðis gríðarlega góðum viðtökum bæði þátttakenda og gesta við HönnunarMars í júní sem fór fram dagana 24.-28. júní,“ segir Þórey Einarsdóttir, stjórnandi HönnunarMars.

„HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hátíðin mun halda áfram að koma inn með krafti, veita innblástur og gleði ásamt að varpa ljósi þann kraumandi skapandi kraft sem hönnunarsamfélagið hér á landi hefur að geyma. Við vitum hvorki hvað framtíðin ber í skauti sér né hvernig hátíðarhald verður en ljóst er að alltaf verður þörf á samtalinu. Því ber okkur skylda að halda ótrauð áfram. Það eru bjartari tímar fram undan, HönnunarMars 2021 verður með nýju sniði í takt við nýja tíma.“

Þórey Einarsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Halla Helgadóttir og Dagur B. Eggertsson á afhjúpun Torg í spegli á HönnunarMars í júní á þessu ári.Mynd/HönnunarMars

Um 80 sýningar og 100 viðburðir breiddu úr sér á höfuðborgarsvæðinu á HönnunarMars í sumar þar sem gestum gafst tækifæri að sækja sér innblástur og kynnast grósku íslenska hönnunarsamfélagsins.

Hátíðin boðar nýjungar og óvænta nálgun og er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. Nánari upplýsingar má finna á vef HönnunarMars en opið verður fyrir umsóknir þátttakanda frá 2. til 30. nóvember.


Tengdar fréttir

Valdís Steinars tilnefnd sem nýstirni ársins hjá Dezeen

Hönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir er á lokalista yfir þá hönnuði sem tilnefndir eru af Dezeeen.com sem nýstirni ársins. Íslendingar geta hjálpað Valdísi að vinna með því að taka þátt í kosningunni. Valdís er tilnefnd í flokknum Emerging design studio of the year.

„Ávallt meðvituð um að við gætum þurft að hætta við allt“

„Það er ótrúlegur léttir að geta sagt að HönnunarMars í júní hafi farið fram úr björtustu vonum teymisins og við eru í skýjunum með hversu frábærlega vel til tókst með hátíðina,“ segir Þórey Einarsdóttir stjórnandi hátíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×