Tíska og hönnun

Förðunartrendin sem hafa slegið í gegn á TikTok

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ingunn og Heiður Ósk eru með vinsæla Instagram síðu og hlaðvarp undir nafninu HI beauty. Í næsta mánuði byrja þær með þætti hér á Vísi. 
Ingunn og Heiður Ósk eru með vinsæla Instagram síðu og hlaðvarp undir nafninu HI beauty. Í næsta mánuði byrja þær með þætti hér á Vísi.  HI Beauty

TikTok er heitasti miðillinn í dag til að færa okkur nýjustu trendin beint í lófann, segja Heiður Ósk og Ingunn Sig, eigendur Reykjavík Makeup School. Í hlaðvarpsþættinum HI Beauty fóru þær yfir þau förðunar og hár trend sem hafa gert allt vitlaust á TikTok. Hvernig virka þau? Eru þau yfir höfuð að virka? 

„Við förum einnig yfir okkar uppáhalds accounta og skemmtileg hacks sem geta hjálpað þér að ná förðunar- og hárlúkkinu á nýtt level.“

Þau trend sem náðu miklu flugi á TikTok síðustu vikur eru meðal annars kinnalitur á nefið, kattarleg augnförðun, skygging með brúnkukremi, augabrúnalyfting, Euphoria förðun, ný uppröðun á förðunarvörum til að láta farðann endast lengur, brúnn augnblýantur, hársnúður að hætti fyrirsætanna, Curly girl aðferðin og margt fleira spennandi. 

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum neðst í fréttinni.

HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty
HI beauty




Tengdar fréttir

Algengar fegurðarmýtur sem rugla fólk í rýminu

Í nýjum þætti af hlaðvarpinu HI Beauty fara þær Ingunn Sig og Heiður Ósk yfir algengar fegurðarmýtur sem þær hafa heyrt í gegnum árin. Ingunn og Heiður Ósk hafa margra ára reynslu þegar kemur snyrtivörum, hári og förðun.

Eftirminnilegasta förðunin frá rauða dreglinum

Förðunarfræðingarnir Heiður Ósk og Ingunn Sig fóru yfir sín uppáhalds augnablik á rauða dreglinum í gegnum árin, í hlaðvarpinu sínu HI Beauty. Þær ræddu bæði förðun, hár og húð stjarnanna.

Stoltar af því að sameina krafta sína

Förðunarskólinn Reykjavík Makeup School tilkynnti í kvöld breytingar, þar sem þær Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir hafa bæst við eigendahópinn. Reykjavik Makeup School er elsti förðunarskólinn á Íslandi, stofnaður í október 2013 af förðunarfræðingunum Söru Dögg Johansen og Sigurlaugu Dröfn Bjarnadóttur sem báðar hafa starfað við fagið í áratug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×