Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sif Atladóttir er orðin móðir. Hún tilkynnti þetta á Instagram-síðu sinni með mynd af barni sínu fyrr í kvöld. Er þetta annað barn hennar og Björns Sigurbjörnssonar.
Sif þarf vart að kynna fyrir landsmönnum enda verið með betri leikmönnum Íslands undanfarin ár. Hún hefur leikið við góðan orðstír með Kristianstads í Svíþjóð frá árinu 2011. Þá hefur hún verið algjör lykilmaður í íslenska landsliðinu.
Ásamt því að vera einkar öruggur varnarmaður þá er hin 35 ára gamla Sif einnig þekkt fyrir gríðar löng innköst sín.
Sif hefur alls leikið 80 A-landsleiki en á enn eftir að skora.