Fótbolti

Vona að þetta verði fjarstæðukenndur dagur

Sindri Sverrisson skrifar
Erik Hamrén fór yfir málin á hlaupabrautinni í Laugardal í dag.
Erik Hamrén fór yfir málin á hlaupabrautinni í Laugardal í dag. mynd/stöð 2

„Þetta gæti auðvitað orðið erfiður dagur fyrir okkur en ég er ekki hræddur,“ segir Erik Hamrén, landsliðsþjálfari í fótbolta, fyrir leik Íslands við England í Þjóðadeildinni á morgun.

Leikurinn hefst kl. 16 á Laugardalsvelli og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Ísland kom heiminum öllum á óvart með 2-1 sigri á Englandi í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi fyrir fjórum árum, en í ljósi þess að nú vantar marga lykilmenn í íslenska liðið, og enska liðið hefur verið á mikilli uppleið undir stjórn Gareth Southgate eftir EM, kæmi sigur Íslands á morgun þá enn meira á óvart?

„Þetta var mjög óvæntur sigur og ég veit ekki hvort hann gæti orðið óvæntari að þessu sinni. En auðvitað kæmi það á óvart líka á morgun. Ef maður skoðar úrslitin síðustu ár hjá Englandi, og liðið, þá ætti En að vinna ef maður er raunsær. Það væri raunsætt að telja að við töpum. En þetta er ástæðan fyrir því hvað fótboltinn er vinsæll. Stundum geta minni lið komið á óvart, eins og Ísland gerði 2016, og fleiri lið hafa gert. Ég vona að þetta verði „óraunverulegur“ dagur, svo að við getum notið hans saman,“ sagði Hamrén á hlaupabrautinni við Laugardalsvöll í dag.

Lært margt af tapinu stóra gegn Sviss

Ísland er í svipaðri stöðu nú og þegar Hamrén var nýtekinn við liðinu fyrir tveimur árum, á leið í leiki við bestu lið Evrópu í Þjóðadeildinni og án lykilleikmanna. Gylfi, Aron, Jóhann Berg, Ragnar, Alfreð og Rúnar Már eru ekki með. Ragnar og Rúnar eru meiddir, félag Arons í Katar gaf honum ekki leyfi til að spila, og þeir Gylfi, Jóhann og Alfreð gáfu ekki kost á sér að þessu sinni. Ljóst er að Ísland má mjög illa við svo miklum skakkaföllum, gegn Englandi á morgun og Belgíu ytra á þriðjudag.

Íslenski hópurinn kom saman á mánudag og hóf æfingar fyrir leikina við England og Belgíu.VÍSIR/VILHELM

„Ég er ekki hræddur. Ég ber auðvitað virðingu fyrir þessum andstæðingum, tveimur af bestu liðum heims. Við vitum að þetta verður virkilega erfitt. Ef að við verðum óheppnir, eða þeir eiga mjög góðan dag, þá geta komið nokkur mörk. En þannig er fótboltinn, og nóg að benda á 8-2 sigur Bayern München á Barcelona. Þetta gæti auðvitað orðið erfiður dagur fyrir okkur en ég er ekki hræddur.

Ég held að við höfum lært margt af leiknum við Sviss [6-0 tap í fyrsta leik Hamrén, í september 2018], og við sýndum það í öðrum leikjum í Þjóðadeildinni það haust og í undankeppni EM, þegar okkur vantaði líka menn en náðum góðri frammistöðu. Ef það tekst á morgun getum við náð góðum úrslitum,“ sagði Hamrén.

Byrjunarliðið breyst í vikunni

Svíinn gaf ekkert uppi um byrjunarlið sitt á morgun en viðurkenndi að hafa að einhverju leyti skipt um skoðun á því hverjir yrðu þar, eftir æfingar vikunnar.

„Við höfum verið saman núna í fimm daga og það hefur eitthvað smávægilegt angrað einhverja en allir eru klárir í slaginn í dag. Ég var auðvitað með ákveðið byrjunarlið í huga áður en menn mættu, en ég hef gert einhverjar breytingar út frá því sem ég hef séð enda eru sumir leikmenn mjög jafnir. Í sumum stöðum hef ég valið þann leikmann sem hefur verið bestur á æfingunum í vikunni,“ sagði Hamrén sem lítur ekki á leikinn sem tækifæri til að leyfa óreyndari leikmönnum að sýna sig og sanna.

Mikilvægustu leikirnir í október og nóvember

„Þetta er mótsleikur og á þessu stigi er næsti leikur alltaf sá mikilvægasti. Við reynum að ná eins góðum úrslitum og mögulegt er. En auðvitað verður þetta líka gott tækifæri og undirbúningur fyrir umspilið í október. Við verðum að vera hreinskilin með það að mikilvægustu leikirnir þetta haust eru í október og nóvember, í umspilinu.

Ég einbeiti mér að þeim leikmönnum sem við höfum til taks hérna og við reynum að gera eins vel og við getum á morgun,“ sagði Hamrén.

Klippa: Viðtal við Hamrén fyrir Englandsleikinn

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×