Innlent

Stöðvaði karl­mann með árs­gamalt barn á fjór­hjóli

Atli Ísleifsson skrifar
Manninum var tjáð að háttsemin væri ekki í lagi. Myndin er úr safni.
Manninum var tjáð að háttsemin væri ekki í lagi. Myndin er úr safni. Getty

Lögregla á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af karlmanni sem var í akstri á fjórhjóli með ársgamalt barn sitt meðferðis á hjólinu.

Manninum var tjáð að háttsemin væri alls ekki í lagi og jafnframt að hann þyrfti alltaf að vera með hjálm þegar hann væri á farartækinu sem hann hafði ekki verið með í þessu tilviki.

Í tilkynningu frá lögreglu segir ennfremur að annar ökumaður hafi svo verið tekinn úr umferð í gærkvöldi vegna gruns um fíkniefnaakstur. Hann viðurkenndi neyslu.

„Þá ók hann sviptur ökuréttindum og var með í fórum sínum þrjá poka, tvo með meintu amfetamíni og einn sem innihélt viagra,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×