Fótbolti

Sara og sam­herjar böðuðu sig við strendur San Sebastian fyrir stór­leikinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir skýlir boltanum frá Paulina Dudek í leiknum við PSG í undanúrslitunum.
Sara Björk Gunnarsdóttir skýlir boltanum frá Paulina Dudek í leiknum við PSG í undanúrslitunum. VÍSIR/GETTY

Sara Björk Gunnarsdóttir er á leið í sinn annan úrslitaleik í Meistaradeildinni á ferlinum.

Annað kvöld mætast Lyon og Wolfsburg í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Spáni, nánar tiltekið á Venue Reale Arena leikvanginum.

Sara Björk og Lyon nýttu daginn í gær vel og böðuðu sig meðal annars í sjónum við bæinn San Sebastian þar sem úrslitaleikurinn fer fram.

Sara og samherjar hennar kæla sig niður.vísir/instagram sara björk

Sara Björk byrjaði inn á í leiknum gegn PSG í undanúrslitunum og vænta má þess að hún verði aftur í byrjunarliðinu annað kvöld.

Hafnfirðingurinn gekk í raðir Lyon frá Wolfsburg í sumar og ætti því að þekkja vel hvernig þýska liðið spilar.

Stöð 2 Sport sýnir beint frá úrslitaleiknum annað kvöld. Upphitun hefst klukkan 17.30 en leikurinn sjálfur 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×