Fótbolti

Mikael á­fram í Meistara­deildinni og grát­legt jafn­tefli í Rúss­landi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mikael og félagar eru komnir í næstu umferð.
Mikael og félagar eru komnir í næstu umferð. vísir/getty

FC Midtjylland er komið áfram í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 1-0 sigur á Ludogorets Razgrad í Búlgaríu í dag.

Fyrsta og eina mark leiksins skoraði varamaðurinn Junior Brumado á 78. mínútu eftir darraðadans eftir hornspyrnu.

Mikael Anderson spilaði síðasta stundarfjórðunginn fyrir Midtjylland.

Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn og Arnór Sigurðsson fyrstu 80 mínúturnar í 1-1 jafntefli CSKA Moskvu gegn Krasnodar.

CSKA komst yfir á 28. mínútu en tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Wanderson fyrir Krasnodar.

CSKA er með sjö stig eftir fyrstu fimm leikina en hefur einungis unnið tvo af fyrstu fimm leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×